Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Halldóra Valgerður Steinsdóttir (f. 1939), dagmóðir, Kvenfélag Árbæjarsóknar. KSS 2021/12.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 2021/12
Titill
Halldóra Valgerður Steinsdóttir
Tímabil
1970-2000
Umfang

14 öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/12. Halldóra Valgerður Steinsdóttir. Einkaskjalasafn. 

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Halldóra Valgerður Steinsdóttir (f. 1939)

Halldóra Valgerður Kristín Ævarr Steinsdóttir

Kvenfélag Árbæjarsóknar

Lífshlaup og æviatriði

Fædd á Borg við Eyrarbaka. Flutti með manni sínum, Óla Karló Olsen (f. 1935) til Reykjavíkur 1959, þau byggðu sér hús í Árbæjarhverfinu 1967. Hún var stofnafélagi í Kvenfélagi Árbæjarsóknar 1968. Starfaði með Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík. Halldóra var dagmóðir í mörg ár og ein af stofnfélögum Samtaka dagmæðra. Hún rak Sólbaðsstofu Árbæjar frá 1988.

 

Foreldrar Halldóru voru Steinn Einarsson (1914-1986) og Gróa J. Jakobsdóttir (f. 1913). Börn Halldóru og Óla: Steinn Jakob (f. 1958), Ingibjörg Ragna (f. 1960), Ágústa (f. 1961), Magnús (f. 1964), Kristín (f. 1970) og Ólína (f. 1973).

 

Um afhendingu

Þann 13. júlí 2021 færði Kristín Óladóttir gögn móður sinnar Halldóru Valgerðar Steinsdóttur, fyrir hönd þeirrar síðarnefndu sem tengjast starfi Halldóru í Kvenfélagi Árbæjarsóknar, sum skjölin tengjast húsmæðraorlofi í Reykjavík. [safnmark: KSS 2021/12]

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

A Kvenfélag Árbæjarsóknar

B Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenfélagasamband Íslands

C Orlofsnefnd húsmæðra

Grisjun

Gefið Íslandssafni til varðveislu (hægt að nálgast þar)

  • Réttarstaða heimavinnandi fólks. Skýrsla starfshóps, sek skipaður var af félagsmálaráðherra. Félagsmálaráðuneytið, október 1989. [Þakkarmiði fylgdi og heldur sér með skjalasafninu]
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, apríl 2011 (1. tbl., 11. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, desember 2000 (3. tbl. 10. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, september 2000 (2. tbl. 10. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, apríl 2000 (1. tbl. 10. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, apríl 1999 (1. tbl. 9. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, október 1999 (3. tbl. 9. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, október 1999 (2. tbl. 9. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, október 1994 (1. tbl., 4. árg)
  • Safnaðarblað Árbæjarsóknar, október 1992 (1. tbl. 2. árg)
  • Húsmóðirin og heimilið, Dagrún Kristjánsdóttir (3. tbl. 1969)
  • Húsmóðirin og heimilið, Dagrún Kristjánsdóttir (4. tbl. 1969)
  • Húsmóðirin og heimilið, Dagrún Kristjánsdóttir (árg. óþekktur)
  • Frysting matvæla. Kvenfélagasamband Íslands, Sigríður Kristjánsdóttir tók saman (1983)
  • Else E. Guðjónsson, Biskupsskrúði Guðmundar góða?, sérpentun úr Skagfirðingabók 18, Reykjavik 1989.
  • Lög Kvenfélagasambands Íslands, Reykjavík 1991
  • Kvenfélag Laugarnessóknar 35 ára 1941-1976 (tvö eintök)
  • Vernd samfélagsþjónusta í stað fangelsisvistar 1:1992
  • Fréttabréf félagsmálaráðuneytisins tbl. 4. árg. 1992 „Alþjóðaár fjölskyldunnar 1994“
  • Bandalag kvenna í Reykjavík 80 ára 1917-1997 (þrjú eintök)
  • Kvenfélagasamband Íslands 70 ára 1930-2000 (tvö eintök)
Viðbætur

Viðbóta er von

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Staðsetning afrita

15 ljósmyndir hafa verið endurgerðar stafrænt og eru aðgengilegar á ljósmyndagagnagrunni Landsbókasafns.

Tengt efni

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt 19. janúar 2025.

 

Rakel gróflokkaði, setti í réttar umbúðir og gekk frá safninu ásamt Johanna Hirsch, starfsnema frá Þýskalandi, sama dag.

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
19. janúar 2025

Skjalaskrá

  • Kvenfélag Árbæjarsóknar (öskjur 1-7) fundargerðir, skýrslur, jólakort, ljósmyndir (15) og fleira
  • Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenfélagsamband Íslands (öskjur 8-12) skýrslur, ráðstefnuskjöl og fleira
  • Orlofsnefnd Húsmæðra (öskjur 13-14) Dagbók 1988 og fleiri gögn