Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Sigríður Sigurðardóttir (1911-1990), kennari. KSS 193.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 193
Titill
Sigríður Sigurðardóttir
Tímabil
1927-1941
Umfang

Ein askja, þunn

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 193. Sigríður Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Sigríður Sigurðardóttir (1911-1990), kennari

Lífshlaup og æviatriði
  • Fædd 14. janúar 1911, látin 27. nóvember 1990, jarðsett 7. desember 1990
  • Foreldrar: Sigurður bóndi (1872-1945) og Sigríður Jónsdóttur (f. 1878). Kvölddeild gagnfræði Austurbæjar Reykjavík 1933-1934
  • Héraðsskólinn Laugarvatni 1934-1935
  • Kennarapróf 1937
  • Kennari í Fellsstrandarskóla Dal. 1938-1940 og Skorradalshr. Borg 1940-941
  • Barn: Birgir Sigurðsson f. 9. apríl 1939.
  • Eiginmaður: 14. október 1941 Ólafur Benónýsson (f. 1907).
  • Börn Sigríðar og Ólafs: Björn (1942-2009), Sigríður Guðrún (f. 1946), Jökull (1947-2009), Sigurður (1951).

Heimild: Fylgibréf afhendingar

Um afhendingu

8. janúar 2010: Hanna R. Guttormsdóttir, Engjaseli 56, sendi safninu gömul gögn frá tengdamóður sinni sem lést árið 1990 (sjá bréf í aðfangamöppu). Sigríður Sigurðardóttir, f. 14. 01. 1911, kennarapróf 1937. 

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir setti á safnmark og tók saman lýsandi samantekt. Áður skráð í öskju 622 samtíningur.

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
21. nóvember 2025

Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1: sendibréf
    • Guðbjörg Bergsdóttir Hverfisgötu 82, Reykjavík 17. febrúar 1935 [frænka]
    • Sigríður Jónsdóttir, Gegnishólum 14. janúar 1936 [móðir]
    • Reykjavík 10. ágúst 1940 [Bagga]
  • örk 2: einkaskjöl
    • bréf til kennslumálaráðuneytisins um kennarstöðu 1940 [óútfyllt]
    • einkunnir kennarapróf, Kennaraskólinn í Reykjavík, 30. apríl 1937
    • einkunnir fullnaðarpróf 15. apríl 1927
    • einkunnaspjald [ódagsett]
    • einkunnaspjald [ódagsett]
    • vitnisburður einkunnaspjald [ódagsett]
    • fæðingarvottorð Sigríðar, dagsett 25. september 1941
    • upplýsingar um Sigríði sem fylgdu afhendingunni
  • Póesíbók ca. 1937