Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947), bæjarfulltrúi. KSS 2021/29.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 2021/29
Titill
Guðrún Ágústsdóttir
Tímabil
1984-2009
Umfang

16 öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/19. Guðrún Ágústsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947), bæjarfulltrúi.

Lífshlaup og æviatriði

Fædd 1. janúar 1947. Menntun: Gagnfræðapróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1964, enskunám í London 1965-1966 og við Edinborgarháskóla 1976. Nám við MH 1979-1982. Einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. Hefur ssem dæmi starfaði sem flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands 1966 og 1967. Fulltrúi hjá Hjúkrunarskóla Íslands 1971-1975 og 1978-1987. Framkvæmdastjóri 1986-1988 við undirbúning Norræns kvennaþings í Ósló og í framkvæmdastjórn þingsins á vegum Norrænuráðherranefndarinnar. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra 1988-1991. Starfsmaður Þjóðviljans 1991. Framkvæmdastjóri 1991-1992 við undirbúning Vestnorræns kvennaþings á Egilsstöðum. Fræðslu- og kynningarfulltrúi Kvennaathvarfsins 1991-1994. Borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins 1982-1990 og Reykjavíkurlistans 1994-2002. Í borgarráði 1994-1998. Ritstörf: Ritstjóri Tilveru, blaðs Kvennaathvarfsins, 1991-1994. Í ritstjórn kynningarrits á ensku um íslenska menningu,1990-1991.
(Heimild: Samtíðarmenn 2003)  

Um afhendingu

Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947) afhenti á skrifstofu Kvennasögusafns gögn sín er varða framkvæmdanefnd um launamál kvenna, vestnorrænt og norrænt kvennaþing ásamt öðrum þingum.

Innihald og uppbygging

Frágangur og skipulag

Eftir möppum sem skjölin voru afhent í

Skjalaflokkar:

  • A Innlent kvenréttindastarf
  • B. Nordisk forum 1988 / Norrænt kvennaþing 1988
  • C. Vestnorrænt kvennaþing 1992

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska, enska, danska

Tengt efni

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Emma Björk grófskráði semma árs 2022

Rakel Adolphsdóttir uppfærði skráningu til að birta á heimasíðu Kvennasögusafns 3. júlí 2025

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Skjalaskrá

A Innlent kvenréttindastarf

  • askja 1 Framkvæmdanefnd um launamál kvenna
  • askja 2 Framkvæmdanefnd um launamál kvenna
  • askja 3 Kvennaárið 1975, 80 ára frá kosningarétti kvennanefnd 1988, innlent kvenréttindaefni o.fl.

 B. Nordisk forum 1988 / Norrænt kvennaþing 1988

  • askja 4 Vestnorrænt kvennaþing
    • framkvæmdanefnd um launamál kvenna
    • 1985 Konan vinna og kjörin í Seðlabanka íslands
    • Kvennastefna AB
    • Ljósmyndir Álfheiður Ingadóttir
    • ræður; Álfheiður Ingadóttir, Vilborg Harðardóttir
  • askja 5 Alþýðubandalagið kvennastarf 9. áratugurinn
    • fréttabréf ofl.
  • askja 6 Norrænt kvennaþing, nordisk forum 1988 undirbúningsnefnd
  • askja 7 Norrænt kvennaþing
    • nordisk forum 88, undirbúningsnefnd
  • askja 8 Norrænt kvennaþing nordisk forum 1988
    • skjöl, ljósmyndir (persónulegar), límmiðar
  • askja 9 Norrænt kvennaþing 1988
  • askja 10 Norrænt kvennaþing
    • Nordisk forum Oslo 1988
  • askja 11 Norrænt kvennaþing nordisk forum 1988 prent
  • askja 12 Nordisk forum 1988 fáni, spóla og plastpoki

 C. Vestnorrænt kvennaþing 1992

  • askja 13 Vestnorrænt kvennaþing 1992
  • munir: bolur, stimpill, taupoki, veggspjald (í nokkrum eintökum, til sléttað á öðrum stað)
  • askja 14 Vestnorrænt kvennaþing 1992
  • barmmerki þingsins, kjósum konur límmiðar KRFÍ (2), símskeyti, ýmis skjöl
  • askja 15 Norrænt kvennaþing 1992 fáni
  • askja 16 Norræn kvennaþing 1994-2009