Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kvöldvökur Kvennasögusafns


ath. verk í vinnslu

1996

1997

1998

Árleg kvöldvaka Kvennasögusafhs íslands verður haldin í veitingastofu á 2. hæð Þjóðarbókhlöðu í kvöld, kl. 20. Flutt verða eftirtalin erindi: Erla Dóris Halldórsdóttir: (Hugsjón höfð að leiðarljósi, Frumherjar íslenskrar hjúkrunarstéttar), Arndís Guðmundsdóttir: (Tvær konur um aldamótin 1900), Margrét Gunnarsdóttir: (Konur, föt og minningar) og Steinunn Jóhannesdóttir: (Sumarlöng reisa og sjöunda hlutverk Guðríðar). Kvöldvakan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

1999

2000

Árleg kvöldvaka safnsins. sem haldin var 5. desember. var helguð stöðu kvenna á árum síðari heimsstyrjaldarinnar, og var sjónum einkum beint að „ástandinu“ svokallaða. Fyrirlestra fluttu Bára Baldursdóttir sagnfræðingur og Herdís Helgadóttir mannfræðingur. Einnig fluttu Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson tónlist frá stríðsárunum.

2001

Fyrirlestur að þessu sinni flutti Þóra Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Þjóðminjasafni Íslands.  Fjallaði erindi hennar um íslenskar myndlistarkonur til forna og bar heitið ,,Margrét oddhaga og allar hinar“.  Þóra byggði frásögn sína á rannsóknum á gripum í Þjóðminjasafni og var hann allur hinn fróðlegasti.

Vilborg Dagbjartsdóttir las frumsamin ljóð sín. Björg Örvar flutti frumsamið ljóð, en myndlistarsýning hennar í röðinni ,,Fellingar“ var opnuð sama dag. Anna Pálína Ásgeirsdóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson sáu um tónlistarflutning.

2002

Tvö erindi voru flutt að þessu sinni.  Helga Kress, prófessor við Háskóla Íslands,  flutti erindi er nefndist:  ,,Hún mamma sín fór burt, burt, burt“ og fjallaði það um barnalýsingar í verkum Halldórs Laxness.  Björg Einarsdóttir flutti erindi er nefndist:  ,,Litlu hvítu rúmin“ og fjallaði það um kvenfélagið Hringinn sem stofnað var í Reykjavík árið 1904.

Guðrún Edda Gunnarsdóttir söng tvö ljóða Halldórs Laxness: ,,Hvert örstutt spor“ og ,,Hjá lygnri móðu“.  Einnig söng Guðrún Edda tvo gamla sálma.

2003

Sigurlaug Guðmundsdóttir las eigin ljóð

 

Flautuleikarar úr Tónlistarskóla Reykjavíkur fluttu verk eftir 3 íslenskar konur undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur. Höfundar verkanna eru Elín Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Bára Grímsdóttir.

 

‘Myndsálir. Konur og veruleiki’.

Hrafnhildur Scham listfræðingur flutti erindi. Í kynningu með erindinu sagði svo:

“Í Listasafni Íslands stendur nú yfir sýningin „Íslensk myndlist 1960-  1980. Raunsæi og veruleiki“. Hrafnhildur mun bregða sterkara ljósi á nokkrar myndlistarkonur sem á þessum tíma voru mjög sýnilegar í íslensku samfélagi og áttu þátt í því að setja fram nýjar hugmyndir um veruleikann og hlutverk listarinnar.  Meðal þeirra eru: Anna Þóra Karlsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Jóhanna Bogadóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Róska, Rúrí, Steina Vasulka, Þorbjörg Höskuldsdóttir og Þorbjörg Þórðardóttir.”

 

‘Í orði og á borði.  Skriftin og leirinn saman á ný’.

Freyja Bergsveinsdóttir og Guðrún Indriðadóttir opnuðu sýningu á verkum sínum.  Á sýningunni voru skálar, vasar og kertastjakar úr steinleir sem listakonurnar höfðu unnið í sameiningu.  Guðrún sýndi einnig nokkur verk úr postulíni og Freyja sýndi letur (skrift) á pappír með vísun í handritin.

2004

Dagskrá Kvöldvökunnar var að þessu sinni helguð Svövu Jakobsdóttur er lést fyrr á árinu og var svo: 

 


Myndbrjótur í orðhofi.  Um sögur Svövu Jakobsdóttur.

Dr. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur

 

“Saga handa börnum”

Hjalti Rögnvaldsson leikari las

 

Vox Feminae kórinn söng

 

Kynni mín af Svövu.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, flutti frásögu.

2005

Kvöldvökuna hélt Kvennasögusafn að þessu sinni 5. desember með Kvenréttindafélagi Íslands í sal Hallveigarstaða. Ávarp flutti Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður KRFÍ og hún var jafnframt kynnir ásamt Auði Styrkársdóttur, forstöðumanni Kvennasögusafns Íslands. Erindi um frumkvöðla og frumkvöðlastarf fluttu Kristín Ástgeirsdóttir er talaði um Thorvaldsensfélagið 130 ára, Auður Þorbergsdóttir er fyrst kvenna varð borgardómari í Reykjavík, Sigríður Snævarr er fyrst kvenna varð sendiherra og Guðrún Ásmundsdóttir er talaði um leikkonur í fararbroddi. Lokaorð flutti Helga Guðmundsdóttir formaður Kvenfélagasambands Íslands. Ellen Kristjánsdóttir söng við undirleik Eyþórs Gunnarssonar. Kvöldvakan tókst vel að venju.

2006

Kvöldvökuna héltKvennasögusafnað þessu sinni 5. desember með Kvenréttindafélagi Íslands í sal Hallveigarstaða undir yfirskriftinni „Kvenréttindi um aldamót“. Dagskráin var á þessa leið:

Ávarp: Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ

„Matthías Jochumson og kvenréttindi“.  Þórunn Erlu Valdimarsdóttir las úr bók sinni Upp á sigurhæðir. Saga Matthíasar Jochumssonar, er út kom í nóvember. Matthías studdi réttindi kvenna og orti m.a. kvæðið „Fullrétti kvenna“ þar sem þessari setningu bregður fyrir: „Ó, mannheimur, karlheimur, blygðastu þín!“

„Ólafía“. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona las úr bók Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur um Ólafíu Jóhannsdóttur sem út kom í nóvember. Ólafía var mjög áberandi í kvenréttindamálum á Íslandi fram til 1903 er hún flutti af landi brott og hóf að líkna mestu smælingjum Oslóborgar.

„Hannes Hafstein og Bríet Bjarnhéðinsdóttir“. Auður Styrkársdóttir, forstöðumaðurKvennasögusafns Íslands flutti erindi um þau Hannesi Hafstein og Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, en leiðir þeirra lágu víða saman og þau voru sammála um margt, en möguleikar þeirra voru gjörólíkir.

2007

Kvöldvökuna hélt Kvennasögusafn að þessu sinni með Kvenréttindafélagi Íslands í sal Hallveigarstaða við Túngötu 5. desember. Opnuð var sýning tileinkuð KRFÍ í 100 ár, en Kvennasögusafn lánaði margt muna til hennar, og flutti forstöðumaður erindi af því tilefni. 

2008

Kvöldvöku hélt Kvennasögusafnað þessu sinni með Kvenréttindafélagi Íslands í sal Hallveigarstaða við Túngötu 3. desember. Vakan tókst vel að venju. Forstöðumaður flutti erindi og minntist þar Önnu Sigurðardóttur en þann 5. desember var aldarafmæli hennar. Af því tilefni birtist í Lesbók Morgunblaðsins grein eftir Sigríði Th. Erlendsdóttur, fyrrum stjórnarnefndarkonu Kvennasögusafns, um Önnu Sigurðardóttur. Lesið var upp úr bókum eftir konur, kaffi og piparkökur voru á boðstólum og efnt var til veglegs happdrættis.

2009

2010

2011

2012

2013

2014

2015

2016

2017

2018

2019

 


*fyrst birt 17. maí 2018
*síðast uppfært 17. maí 2018