Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Gunnlaugur Finnsson (1928–2010), bóndi og alþingismaður. KSS 91.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 91
Titill
Gunnlaugur Finnsson
Tímabil
1892-1980
Umfang

Fimm öskjur í opnun aðgangi.

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 91. Gunnlaugur Finnsson. Bréfasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Gunnlaugur Finnsson (1928–2010), bóndi og alþingismaður. Foreldrar: Finnur Finnsson (1876-1956) og Guðlaug Sveinsdóttir (1885-1981).

Maki (14. júní 1952): Sigríður Jóhanna Bjarnadóttir (fædd 19. mars 1926) húsmóðir. Börn: Sigurlaug (1953), Halldóra Valgerður (1955), María (1956), Finnur Magnús (1958), Bergljót (1960), Birna (1961), Einar Þór (1964).

Stúdentspróf MA 1949. Bóndi á Hvilft síðan 1950. Kennari við Héraðsskólann á Núpi 1953–1954 og við barna- og unglingaskóla á Flateyri 1959–1974. Kaupfélagsstjóri á Flateyri 1980–1988. Alþingismaður Vestfirðinga 1974–1978 (Framsóknarflokkur).

Heimild: Alþingi.is 

Lífshlaup og æviatriði

Fæddur á Hvilft í Önundarfirði 11. maí 1928, dáinn 13. janúar 2010. 

Varðveislusaga

Úr fórum afkomenda.

Um afhendingu

Gögnin afhentu Kvennasögusafni Halldóra og Sigurlaug Gunnlaugsdætur 3. mars 2011.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Safnið hefur að geyma bréfasafn Gunnlaugs Finnssonar (1928-2010), bónda að Hvilft í Önundarfirði og alþingismanns. Bréfin eru frá foreldrum hans og systkinum er hann dvaldi að Menntaskólanum á Akureyri, bréf frá skólasystkinum og öðrum vinum, nokkur bréf frá stuðningsmönnum og kjósendum.

Grisjun

Engu var eytt

Viðbætur

Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er takmarkaður að hluta
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Skjölin komu í öskjum sem Kvennasögusafn lagði til. Auður Styrkársdóttir endurraðaði að nokkru. Hún skrifaði einnig lýsingu í mars 2011 og setti á safnmark.

Askja 1 var í opnum aðgangi við afhendingu. Öskjur 2-5 voru í lokuðu aðgengi þar til 3. mars 2018. Allt safnið verður aðgengilegt 3. mars 2041.

Dagsetning lýsingar
23. mars 2011

Skjalaskrá

Askja 1:

Bréf Sigríðar Þórarinsdóttur (föðurömmu Gunnlaugs) til bróður (1892) og sonar (1906–1908) og dagbækur sonarins (1904–1910), Finns Finnssonar.

Askja 2:

Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá foreldrum, ca. 1946–1965. Efst liggja passamyndir af Gunnlaugi

Askja 3:

Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá systkinum: Hjálmar Finnsson – Jóhann Finnsson – Kristín Finnsdóttir – María Finnsdóttir – Málfríður Finnsdóttir – Ragnheiður Finnsdóttir – Sigríður Finnsdóttir – Sveinbjörn Finnsson – Sveinn Finnsson

Askja 4:

Bréf frá öðrum ættingjum: Árni Matthíasson – Gunnar Sveinbjörnsson (Canada) – Þórunn G. Jenson (Danmörku) – Sigrid – Svein – Ellen May Nilsen – Árni Matthíasson. Bréf frá Leifi Guðjónssyni. – Bréf frá Eysteini G. Gíslasyni, Skáleyjum

Askja 5:

Í örkum: Bréf frá skólafélögum o.fl.: Ólöf Jónsdóttir, Skólavörðustíg 17b – Vilborg Guðjónsdóttir, Skólavörðustíg 17b – Björg Ólafsdóttir, Akureyri – “Siva” – Jón Ármann Héðinsson – Jón Arngrímsson – Lesley Rogers – Einar Pálsson – Böðvar, Gautlöndum – Bragi Erlendsson – Ólafur Kristjánsson, skólastjóri Reykjum – Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli – Danskir vinnumenn – .

Örk: Ýmsir bréfritarar: “Alla” – Sigrún, Sólvöllum – Lilja Bergþórsdóttir – Anna María, Selfossi – Helgi Ágústsson – Ragnar Árnason – Jólakort

Örk: Bréf frá árunum 1970-1980

Örk:Bréf frá árunum1964-1969

Örk: Bréf frá árunum 1950-1956