Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 75
- Titill
- Elín Guðmundsdóttir
- Tímabil
- 1932-1989
- Umfang
Tvær öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 75. Elín Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Elín Guðmundsdóttir (1912–2003)
- Lífshlaup og æviatriði
F. 16. júlí 1912 í Reykjavík, †12. júní 2003. Gift Stefáni Ögmundssyni prentara, eignuðust þau fjórar dætur. Húsmóðir og verkakona. Meðal stofnenda Félags ungra jafnaðarmanna 1928, félagi í Kommúnistaflokki Íslands frá 1932, átti sæti í stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur og miðstjórn sameiningarflokks alþýðu Sósíalistaflokksins. Formaður Kvenfélags Sósíalista og í stjórn MÍR 1970–1979. Meðal stofnenda Kvenfélagsins Eddu (eiginkvenna prentara) og formaður þess í 20 ár. Átti sæti í Félagsheimilisnefnd hins íslenzka prentarafélags. Virkur félagi í Kvennaframboðinu og Samtökum um kvennalista frá upphafi og einn stofnenda Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Starfaði auk þess með ýmsum kvennasamtökum svo sem Rauðsokkahreyfingunni, Bandalagi kvenna í Reykjavík og Kvenréttindafélagi Íslands.
- Varðveislusaga
Gögnin afhentu dætur Elínar, Ingibjörg, Steinunn, Bergljót og Sigríður Stefánsdætur úr dánarbúi hennar.
- Um afhendingu
Afhending var 29. október 2007.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Tvær öskjur
- Grisjun
Engu var eytt
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 2017/7 Elín Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands. Einkaskjalasafn.
KSS 17. Kvenfélag sósíalista. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir raðaði og gekk frá í öskjur. Hún skrifaði einnig lýsingu í febrúar 2013 og setti á safnmark.
- Dagsetning lýsingar
- 27. febrúar 2013
Skjalaskrá
A Félagsmál
B Hússtjórnarskóli Reykjavíkur
C Gögn varðandi útvarpsdagskrár KRFÍ
D Ýmsar greinar
E Samtíningur
F Alþjóðasamhjálp verkalýðsins
Askja 1:
A Félagsmál
Ýmis gögn er lúta að þátttöku Elínar í félagsmálum. Neðst liggja í umslögum: félagsskírteini í KRFÍ og Mæðrafélaginu, áskriftarskírteini að tímaritinu Melkorku, merki landsfundar KRFÍ 1956, Áfengisbók fyrir konur frá 1941, félagsskírteini E.G. í húsnæðissamvinnufélaginu Búseta; umslag með ljósmynd tekin 1953 um borð í Gullfossi af ísl. konum er sóttu Heimsþing kvenna 1953, og korti frá Önnu Sigurðardóttur; umslag með Ex libris Katrínar Thoroddsen
- KRON:
– Bréf 24.06.1947 vegna kjörs í nefnd til að undirbúa útvegun lóðar fyrir verslunarhús
félagsins
– 4 bréf vegna fulltrúakjörs á aðalfund SÍS (Samband ísl. Samvinnufélaga), 1947, 1949, 1951 og 1952
– Tillaga samþykkt á aðalfundi KRON 24.06. 1947, flutt af Elínu Guðmundsdóttur, þar sem væntanlegum fulltrúum á aðalfundi SÍS er ætlað að beita sér fyrir launajafnrétti í samvinnufélögunum
- Borgarstjórinn í Reykjavík:
– 3 bréf, 1957, 1958 og 1961, þar sem tilkynnt er um kosningu Elínar sem varamanns í framfærslunefnd Reykjavíkur
- Kvenréttindafélag Íslands:
– Bréf 01. 03. 1960 vegna fulltrúakjörs á landsfund
– Bréf 20. 01. 1942, boð í 40 ára afmælisfagnað KRFÍ
– Boðskort vegna 75 og 80 ára afmælisfagnaða KRFÍ
– SÍS 50 ára, nafnspjald fulltrúa á aðalfundi ásamt boðskorti
- Heimsþing kvenna:
– Heimsþing kvenna 1953, þátttökuspjald
– Heimsþing kvenna 1953, spjald með eiginhandaráritun fjölda þátttakenda
– Ljósmynd úr ráðstefnusal frá Heimsþingi kvenna 1967
– Ljósmynd af Valentinu Tereshkovu, geimfara
- Nýárskveðja 1974 frá Alþjóðasambandi lýðræðissinnaðra kvenna með teikingu sem Picasso gaf sambandinu
- Nordisk forum 1988. Ýmislegt, m.a. tilkynning frá skrifstofu borgarstjóra um ferðastyrk
- Eystrsaltsvikan: dagskrá ráðstefunnar 1974 á þýsku og íslensku og ýmis boðskort
- Þátttökuskírteini Elínar í sendinefnd til Rússlands 1931; bréf til Elínar og annarra þátttakenda frá Rússlandssendinefndinni, dags. 6. jan. 1932, undirr. af Hauki Björnssyni (ath. hér sést hverjir fóru; í bréfinu er vikið að brottreksti Kjartans og Ellu úr FUJ í jan. 1932)
- Nýja konan, 3. tbl., 4. árg. 1935
- Lög og tilgangsorð Fjelags ungra jafnaðarmanna; bréfspjald Fjelags ungra jafnaðarmanna
Efst liggja þessar bækur:
Byltingasöngvar. Útgefandi: Samband ungra kommúnista. Fjölrit 1932
10 ára afmælisrit. Félag ungra jafnaðarmanna. 1937
Askja 2:
B Hússtjórnarskóli Reykjavíkur
Hússtjórnarskóli Reykjavíkur, saman í örk:
– Skipunarbréf Elínar Guðmundsdóttur í stjórn skólans, dags. 27. nóv. 1984
– Listi yfir námskeið skólans veturinn 1984-85
– Erindi Halldóru Eggertsdóttur: Húsmæðraskóli Reykjavíkur á vegamótum, flutt á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík 1977
– Bæklingur Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, Hvenær ferð þú að búa?
– 50 ára afmæli Hússtjórnarskólans í Reykjavík, prentuð dagskrá
– 50 ára afmæli Hússtjórnarskólans í Reykjavík, boðskort til Elínar Guðmundsdóttur
C Gögn varðandi útvarpsdagskrár KRFÍ
Gögn varðandi útvarpsdagskrár á vegum KRFÍ sem Elín Guðmundsdóttir vann að (sjá einnig öskju 293):
– Tvær tillögur á 10. landsfundi KRFÍ, 19.-20. júní 1960, um kjör í útvarpsnefnd og hlutverk nefndarinnar
– Tvö uppköst að bréfum til útvarpsráðs
– Listi yfir útvarpsdagskrár KRFÍ fluttar á milli landsfunda 1960 og 1964
– Skýrsla útvarpsnefndar KRFÍ 1960-1964
– Afrit af þakkarbréfi til Guðmundar Hagalín rithöfundar 24. júní 1961
– “Íslensk húsmóðir”, útvarpsdagskrá KRFÍ 18. júní 1961 í umsjá Önnu Sigurðardóttur og Elínar Guðmundsdóttur
– “Móðir og barn”, útvarpsdagskrá KRFÍ 18. júní 1963 í umsjá Elínar Guðmundsdóttur og Guðbjargar Arndal
– “Mannréttindi”, útvarpsdagskrá KRFÍ 1968 í umsjá Elínar Guðmundsdóttur
D Ýmsar greinar
– Ferðaminningar, frá dvöl í Sovétríkjunum 1955
– Grein um jafnrétismál (frá 1946?)
– Grein/erindi um æskulýðsmál, væntanlega 1951
– Avarp flutt á kvennaráðstefnu Eystrasaltslandanna, Noregs og Íslands í Rostock 1974, þýðing á þýsku fylgir með
– Ávarp flutt í kynnisferð til Armeníu á vegum MÍR, Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna, sumarið 1975
– Margrét Ottósdóttir, kveðja frá Kvenfélagi sósíalista
– Ingibjörg Marsibil Guðjónsdóttir, minning
– Helga Rafnsdóttir 90 ára, 6. des. 1990
– Leiðrétting varðandi Kvenfélag sósíalista vegna viðtals í Veru við Nönnu Ólafsdóttur
– Bréf til forstjóra ÁTVR dags. 17. sept. 1975 til að vekja athygli á armensku rauðvíni
– Bréf til Morgunblaðsins dags. 10. okt. 1989, aths. vegna greinar eftir Guðjón Friðriksson í Lesbók 30. sept. varðandi Klapparstíg 40
- Um 8. mars
E Samtíningur:
– Ræða á almennum kvennafundi í Iðnó 16. júní 1947
– Frásögn af Bodil Begtrup, sendiherra Dana, í danska sendiráðinu
- Kvenfélag sósíalistaflokksins; ágrip af sögu o.fl.
F Alþjóðasamhjálp verkalýðsins
A.S.V.- Alþjóðasamhjálp verkalýðsins: Fundagerð stofnfundar og fundagerðir 6 funda ASV árið 1932, lög fyrir Kvennadeild ASV – handskrifað af Elínu Guðmundsdóttur