Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kvenfélag Árneshrepps (1925-2006). KSS 70.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 70
Titill
Kvenfélag Árneshrepps
Tímabil
1926-2006
Umfang

Fjórar öskjur og ein útskorin gestabók

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 70. Kvenfélag Árneshrepps. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Kvenfélag Árneshrepps (1926-2006)

Lífshlaup og æviatriði

Félagið starfaði í Árneshreppi í Strandasýslu á árunum 1925-2006, var í Kvenfélagasambandi Strandasýslu og Kvenfélagasambandi Íslands

Varðveislusaga

Gögnin voru í fórum ritara félagsins hverju sinni

Um afhendingu

Sólveig S. Jónsdóttir, síðasti formaður félagsins, afhenti gögnin ásamt gögnum minningarsjóðs Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ í Strandasýslu, 4. júní 2015.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Skjalaöskjur, 4, venjulegar að stærð, með pappírsgögnum og nokkrum bókum fyrir fundagerðir og reikninga. Ein stór úrskorin gestabók.

Grisjun

Allir reikningar fylgdu afhendingu. Haldið var eftir 5. hverju ári sem sýnishorni en hinu eytt.

Viðbætur

Ekki er von viðbóta

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er ótakmarkaður
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir skráði.

Dagsetning lýsingar
18. október 2015

Skjalaskrá

Askja 1

  • Fundagerðabók frá 24. ágúst 1926 – 23. júní 1948. Einnig færðar inn starfsskýrslur stjórna á sama

   tímabili og gjafir til fátækra barna.

  • Fundagerðabók frá 21. júlí 1949 – 21. sept. 2006. Félaginu var slitið á síðasta fundi þess.
  • Nafnabók yfir Kvenfélagskonur Árneshrepps, 1938-1996.
  • Reikningar Kvenfélags Árneshrepps, 1926-2005. Fremst í bókina eru rituð nöfn

   stofnfélaga.

Askja 2

  • Verkefni kvenfélagasambands Íslands fyrir Unicef, 2006
  • Erindi frá Kvenfélagasambandi Íslands
  • Nokkrar fundargerðir KSS (Kvenfélagasamband Strandasýslu)
  • Nokkur bréf frá KRFÍ, m.a. um stofnun Menningar- og minningarsjóðs kvenna, 1945
  • Orlofssjóður húsmæðra í Strandasýslu, nokkur bréf
  • Vegna dánarbús Ingibjargar Guðmundsdóttur, Stóru-Árvík, 1982, úthlutun.
  • Umsókn um styrk til atvinnumála kvenna, 1999, og svarbréf
  • Bréf frá landsbyggðarhóp um kvennafrí 24. okt. 1975, dreifibréf Framkvæmdanefndar um kvennafrí
  • Jólakort frá Barnaskóla Árneshrepps 1957 – Kort frá Sigríði Halldórsdóttur – Bréf frá Júlíönu Guðmundsdóttur 1944
  • Safnanir: Söfnun fyrir heyrnarmælingatæki 1984 – Sjónvarp fyrir Sjúkrahúsið á Hólmavík 1978 – Sjúkrabörur fyrir Slysavarnarfélagið 1978 – Gjöf til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1981 – Til krabbameinsdeildar kvensjúkdómadeildar 1985
  • Bréfuppkast til slysavarnarfélags vegna nauðsynar á síma í Veiðileysu, 12.9. 1972
  • Bréf um val á nafn á félagsheimili Árneshrepps, 1967
  • Ungverjalandssöfnun 1956
  • Lög Kvenfélags Árneshrepps (ódagsett)
  • Bréf og erindi til Kvenfélags Árneshrepps
  • Ársskýrslur Kvenfélags Árneshrepps, 1948, 1977-2006 (ekki samfellt)

Askja 3

Reikningar Kvenfélags Árneshrepps (valin ár, sýnishorn)

Askja 4

Minningarsjóður Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ í Árneshreppi, stofnaður 1962:

  • Bækur: Skrá yfir gjafir og áheit – Gerðabók fyrir minningarsjóð Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ – Bókhaldsbók 1964-2007
  • Ársreikningar
  • Ýmislegt
  • Lokun sjóðsins
  • Skipulagsskrá

 

Fagurlega úrskorin gestabók.