Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 56
- Titill
- Borghildur Einarsdóttir
- Tímabil
- 1921-1974
- Umfang
Sex öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 56. Borghildur Einarsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Borghildur Einarsdóttir (1898–1981)
- Lífshlaup og æviatriði
Fædd 28. apríl 1898, látin í Reykjavík 26. jan. 1981.
Giftist Sigurði Jóhannssyni á Eskifirði, eignuðust fjögur börn.Heimild: Þjóðviljinn 3. febrúar 1981, bls. 12.
- Varðveislusaga
Gögnin voru í fórum sonar Borghildar, Einars Braga rithöfundar.
- Um afhendingu
Ekki finnast heimildir um upprunalega afhendingu – sennilega var hún á árunum 1994-1996. Þann 1. október 1999 bætti Einar við fáeinum reikningum úr búi Borghildar, sbr. aðfangaskrá (mappa), bréf dags. 15 des. 1999. Svo 17. desember 1999 bætti hann við nokkrum sendibréfum frá móður sinni til bróður hennar. Einnig bréf frá föður hans.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Safni Borghildar Einarsdóttur er skipt upp í eftirfarandi flokka: A. Dagbækur og minnisbækur Borghildar Einarsdóttur – B. Bréf
- Grisjun
Engu var eytt
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska og enska.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsandi samantekt í júlí 2012.
- Dagsetning lýsingar
- 31. júlí 2012
Skjalaskrá
A Dagbækur, minnisbækur, gestabækur
Askja 1 og Askja 2
Bókunum er raðað í öskjurnar eftir stærð og fyrirferð, ekki eftir árum
Askja 3:
Gestabækur (2), dagbók 1956-1957
Askja 4:
Dagbók 1945-1947, gestabók
Askja 5:
Dagbækur, reikningar o.fl. úr búi Borghildar
B Bréf
Askja 6:
˖ Borghildur Einarsdóttir til Brynjólfs Einarssonar – 13 bréf, skrifuð 1950 (2), 1952, 1954 (2), 1959 (3), 1960, 1968, 1971 og 1972 (2)
˖ Sigurður Jóhannsson til Brynjólfs Einarssonar – 5 bréf, skrifuð 1937, 1938, 1943 og 1944
˖ Brynjólfur Einarsson til Borghildar Einarsdóttur – 19 bréf, skrifuð 1943 (2), 1950, 1951 (3), ódagsett (1), 1953, 1955, 1956, 1958, 1959 (2), 1963, 1964, ódagsett, 1966, 1968, 1975