Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 5
- Titill
- Mæðrafélagið
- Tímabil
- 1936-1983
- Umfang
Þrjár öskjur.
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 5. Mæðrafélagið.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Mæðrafélagið.
- Lífshlaup og æviatriði
Tilgangurinn með stofnun félagsins var að beita sér fyrir réttarbótum fyrir mæður og börn, og aukinni menningu. Fyrsti formaður var Laufey Valdimarsdóttir. Haldnir voru fræðslufundir og erindi flutt um ýmislegt er barnauppeldi og barnafræðslu varðar. Einnig voru haldin saumanámskeið á vegum félagsins og foreldrafundir í samráði við skólastóra og fræðslufulltrúa. Félagið starfrækti lengi sumardvalarheimilið Vorboðann með Þvottakvennafélaginu Freyju og Verkakvennafélaginu Framsókn.
Heimildir:
- Verklýðsblaðið, 23. mars 1936, bls.2
- Tíminn, 06.03. 1956, s. 2
- Kvenréttindafélag Íslands 40 ára. Minningarrit. S. 133-134
- Varðveislusaga
Gögnin voru í vörslu síðustu stjórnarkvenna félagsins. Þær voru: Brynhildur Skeggjadóttir. Jóhanna Þórðardóttir. Guðbjörg Magnúsdóttir.
- Um afhendingu
Meðlimir síðustu stjórnar félagsins afhentu Kvennasögusafni gögnin sem þær höfðu varðveitt 28. október 1987, skv. Gjafabók 1.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Í safninu eru þrjár öskjur með fundagerðabókum og blaðaúrklippum og öðru efni.
- Grisjun
Engu var eytt
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun
- Tungumál
- íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju og skrifaði lýsingu og setti á safnmarkið KSS 5, gömul öskjunúmer 92-94 héldu sér. Rakel Adolphsdóttir breytti öskjunúmerunum í 1–3 í janúar 2019.
- Dagsetning lýsingar
- 31. júlí 2013
Skjalaskrá
Askja 1
Fundagerðabækur 1936-1959
Askja 2
Fundagerðabækur 1960-1983
Askja 3
Ýmis gögn úr fórum Mæðrafélagsins
• Fundaboð
• Söguyfirlit
• Bréf
• Nafnabók
• Gestabók [frá 1961]