Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 36
- Titill
- Hulda Pétursdóttir
- Umfang
Tvær öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands –Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands KSS 36. Hulda Pétursdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Hulda Hraunfjörð Pétursdóttir frá Útkoti (1921-1995), bóndakona, rithöfundur, listmálari
- Lífshlaup og æviatriði
Fædd að Ytri-Tröð, Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu, 24. apríl 1921, látin 14. nóvember 1995.
Foreldrar: Pétur J. Hraunfjörð Jónsson, f. 14.5. 1885, d. 5.3. 1957, skipstjóri og verkamaður í Reykjavík, og Sigurást Kristjánsdóttir (Ásta), f. 6.6. 1891, d. 27.7. 1980, húsmóðir.Hulda giftist 1940 Alfreð Hólm Björnssyni, f.1915, vörubílstjóra, bónda og frístundamálara. Börn Huldu og Alfreðs: Hafsteinn Pétur, Óskar Mar, Sæmundur Unnar. Stjúpsonur Huldu er Björn Reynir, fósturdóttir er Kristín Huld Skúladóttir.
Hulda bjó lengstum að Útkoti á Kjalarnesi, var bóndakona og stundaði jafnframt ritstörf og hélt nokkrar málverkasýningar.
Heimild: Morgunblaðið, 22. nóvember 1995.
- Um afhendingu
Skjöl bárust Kvennasögusafni Íslands frá Huldu Pétursdóttur 11. jan. 1982. Sjá Gjafabók V (græn stílabók). Skjöl bárust einnig frá Ólöfu Hraunfjörð, um hendur dóttur hennar, Petrínu Rósar Karlsdóttur, 24. okt. 2000.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Tvær öskjur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 48. Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð. Einkaskjalasafn. [systir]
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsandi samantekt í september 2011. Safnið hafði verið raðað í öskjur og skráð af Önnu Sigurðardóttur og Erlu Huldu Halldórsdóttur áður.
- Dagsetning lýsingar
- 2011
Skjalaskrá
Askja 1
Gullkista þvottakvenna. Handrit, bæði vélrituð og handrituð, að bókinni sem gefin var út 1997.
– Minningargreinar, handskrifaðar, um Kristjánsínu Sigurást Kristjánsdóttur og Stefaníu Sigurbjörgu Kristjánsdóttur
Askja 2:
– Kynni mín af hernáminu (ritgerð). – Suðurpólarnir (Frásögn) – Sykurmolinn (saga) – Agnes (saga) – Tökubarnið (saga) – Hernámsárin – Pálína og Jósafat – Kópavogur (frásögn) – Læknaráð til leiðbeiningar (blaðagrein) – Verður Saurbæjarkirkja á Kjalarnesi lögð af? (blaðagrein) – Er fólk algjörlega réttlaust (blaðagrein) – Minningargreinar eftir Huldu. Sjá nafnalista í öskju