Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Sólveig Ólafsdóttir (1904–1997), húsmóðir. KSS 2021/26.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 2021/26
Titill
Sólveig Ólafsdóttir
Tímabil
1926-1956
Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/26. Sólveig Ólafsdóttir. Einkaskjalasafn. 

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Sólveig Ólafsdóttir (1904–1997) húsmóðir 

Lífshlaup og æviatriði

Sólveig Ólafsdóttir, húsmóðir, var fædd 24. febrúar 1904 að Strandseljum við Ísafjarðardjúp. Sólveig var við nám við matreiðsludeild kvennaskólans á Blönduósi veturinn 1926–1927. Hún var gift Hannibali Valdimarssyni (1903–1991), alþingismanni og ráðherra, en þau stofnuðu heimili á Ísafirði árið 1934 og bjuggu þar til 1952. Áttu þau fimm börn saman:  Arnór (f. 1934) prófessor við Háskóla Íslands, Ólafur Kristján (f. 1935) blaðamaður, Elín (f. 1936) kennari, Guðríður (f. 1937) bankastarfsmaður, Jón Baldvin (f. 1939) alþingismaður. Sólveig tók virkan þátt í félagsstarfi og var m.a. formaður Kvenfélags Alþýðuflokks á Ísafirði um skeið. Þá bauð hún sig fram til Alþingis árið 1956 en náði ekki kjöri. Hún lést 11. maí 1997. 

Heimild: Morgunblaðið 13. maí 1997 

Varðveislusaga

Hafa verið í vörslu Elínar Hannibalsdóttur frá andláti Sólveigar. 

Um afhendingu

Elín Hannibalsdóttir, dóttir Sólveigar, afhenti bækurnar þann 11. október 2021. 

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Ein askja sem inniheldur fimm handskrifaðar bækur, fjórar þeirra skrifaði Sólveig sem hluta af námi sínu á matreiðsludeild kvennaskólans á Blönduósi veturinn 1926–1927 og ein er minnisbók hennar frá svipuðu tímabili. 

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska, handskrifað

Tengt efni

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir skráði 

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
19. október 2021

Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1: Æviágrip Sólveigar Ólafsdóttur, ritari er Elín Hannibalsdóttir 
  • örk 2: Framboðsbréf Sólveigar Ólafsdóttur til húsfrúa 1956 
  • örk 3: Matreiðslubók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927 
  • örk 4: Matreiðslubók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927  
  • örk 5: Fæðuefnabók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927 
  • örk 6: Brauð og kökur skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927 
  • örk 7: Minnisbók [inniheldur nöfn og heimilisföng auk ljóða o.fl., án ártals en ártalið 1932 er ritað á eina blaðsíðuna]