Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Regína Magdalena Benediktsdóttir Thoroddsen (1887-1929), húsmóðir. KSS 179.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 179
Titill
Regína Thoroddsen
Tímabil
1913, 1995, 1999
Umfang

Ein askja, þunn.

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 179. Regína Thoroddsen.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Regína Magdalena Benediktsdóttir Thoroddsen, 1887-1929.

Lífshlaup og æviatriði

Regína Magdalena var fædd 23. júní 1887 á Grenjaðarsað. Hún var dóttir hjónanna Ólafar Ástu Þórarinsdóttur húsfreyju og Benedikts Kristjánssonar prófasts. Regína stundaði nám við Lýðháskólann í Askov á Suður-Jótlandi veturinn 1913 og sendi þá bréfið til unnusta sínum, síðar eiginmanni, Guðmundar Thoroddsen (1887–1968) þegar hann var við framhaldsnám í handlæknis- og yfirsetufræðum í Kaupmannahöfn. Þau giftust 3. maí 1913 og eignuðust sjö börn. Regína lést af slysförum í Reykjavík 28. apríl 1929.

Varðveislusaga

Bréfið er úr eigu elstu dóttur Regínu, Dóru Thoroddsen, sem bað dóttur sína, Ragnhildi Bragadóttur sagnfræðing og upplýsingafræðing, að afhenda Kvennasögusafni.

Um afhendingu

Úr afhendingabók „13. apríl 1999. Ragnhildur Bragadóttir bókasafnsfræðingur, afhenti Kvennasögusafni Íslands fyrir hönd móður sinnar, Dóru Thoroddsen, sendibréf frá árinu 1913. Bréfið er skrifað af Regínu Magdalenu Benediktsdóttur Thoroddsen til unnusta síns, Guðmundar Thoroddsen, læknis og prófessors. Regína og Guðmundur voru foreldrar Dóru Thoroddsen. Meðfylgjandi er greinargerð skrifuð af Ragnhildi Bragadóttur.“

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska
Umfang og tæknilegar þarfir

Handskrifað, vélritað.

Tengt efni

Tengt efni

KSS 53. María Skúladóttir Thoroddsen.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt. Var áður í öskju 281. Upplýsingar varðandi afhendingu fengnar úr afhendingabók Kvennasögusafns.

Dagsetning lýsingar
21. febrúar 2024

Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1:Sendibréf frá Regínu til Guðmundar, 17. febrúar 1913
  • örk 2:Upplýsingar um bréfið og bréfritara frá Ragnhildi Bragadóttur
  • örk 3: Þjóðminjasafnið Þjóðháttasafn, svör Dóru Thoroddsen