Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Þórhildur Sveinsdóttir (1909–1990), húsmóðir og skáld. KSS 177.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 177
Titill
Þórhildur Sveinsdóttir
Tímabil
óvíst
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 177. Þórhildur Sveinsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Þórhildur Sveinsdóttir (1909–1990), húsmóðir og skáldkona

Lífshlaup og æviatriði

Fædd að Hóli í Svartárdal, Austur-Húnavatnssýslu, 16 mars 1909. Foreldrar hennar voru Svein Jónsson og Vilborg Ólafsdóttir. Var gift Víglundi Gíslasyni (d. 1977) og áttu þau saman þrjú börn. Þau skildu. Síðar bjó hún með Aðalsteini Sveinbjörnssyni (d. 1988) í Nökkvavogi 11. Þórhildur eignaðist einnig dreng sem dó ungur af slysförum. Þórhildur lést 7. apríl 1990. Minningargrein.

 

Börn hennar: Elísabet María Víglundsdóttir (1933–2018), Gísli Víglundsson (1935–, Guðrún Vilborg Víglundsdóttir (1942–2016)

Davíð Georg (1945-1947)

 

Gaf út ljóðabókina Í gær og í dag árið 1968 og Sól rann í hlíð 1982.

 

Nánar á skáld.is

Úvarpsþáttur um hana í gerð Ragnheiðar Viggósdóttur frá 1982 var gerður aftur aðgengilegur á RÚV 22. janúar 2023.

Um afhendingu

Þórhildur Sveinsdóttir afhenti ljóðabréfið Kvennasögusafni 15. júní 1981 

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Tengt efni

Handritasafn: 13. apríl 1978 – Sarpur – Sendibréf (1) frá Þórhildi Sveinsdóttur skáldkonu til móður sinnar.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Lýsandi samantekt varð gerð af Rakel Adolphsdóttir 18. janúar 2024.

Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1:Brjóstnálin
  • örk 2:Hausthvörf
  • örk 3:Vísnamars
  • örk 4: Guðrún Ósvífursdóttir
  • örk 5:Ljóðabréf Ingiríðar Pálmadóttur til Guðrúnar Þorleifsdóttur í Geldingarholti, Sölvi Sveinsson (1795–1855) samdi [Guðrún Þorleifsdóttir og Ingiríður Pálmadóttir]