Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 164
- Titill
- Halldóra Sigurjónsdóttir
- Tímabil
- 1929–1988
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 164. Halldóra Sigurjónsdóttir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Halldóra Sigurjónsdóttir (1905–1994), skólastjóri Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum
- Lífshlaup og æviatriði
Fædd 26. júní 1905 á Sandi í Aðaldal. Foreldrar hennar voru Sigurjón Friðjónsson bóndi og Kristín Jónsdóttir. Systkini hennar eru níu talsins: „Arnór, skólastjóri Alþýðuskólans á Laugum, síðar starfsmaður Hagstofu Íslands, Unnur, húsfreyja á Laugabóli í Reykjadal, Áskell, bóndi í Laugafelli í Reykjadal, Dagur, skólastjóri barnaskólans á Litlulaugum, Fríður, ljósmóðir, síðast á Sólvangi í Hafnarfirði og Sigurbjörg, húsfreyja á Litlulaugum í Reykjadal, en yngri Ingunn, sem lést úr berklum fulltíða, Ásrún, hjúkrunarkona á Hvítabandinu í Reykjavík, og Bragi, alþingismaður og bankaútibússtjóri á Akureyri.“
Lærði „við Alþýðuskólann á Breiðumýri 1922-23 og síðar á Laugum 1926-27, þegar skólinn hafði verið fluttur þangað. Eftir það fór hún til náms í hússtjórnarfræðum til Svíþjóðar, fyrst við húsmæðraskólann Helsingegården 1927-28. Húsmæðrakennaraprófi lauk hún hins vegar í Rimforsa 1930. Enn fór hún í námsferð til Norðurlanda 1950 og tók m.a. þátt í kennaranámskeiði í uppeldishagfræði í Uppsölum.“ Hóf störf við kennslu við húsmæðraskola á Laugum árið 1930 og tók við skólastjórn árið 1946 og gegndi henni í 20 ár.
Giftist Halldóri Víglundssyni (1911–1977) árið 1933. Þau áttu þrjú björn: Halldór (f. 1934)yfirlæknir á Kristnesspítala, Svanhildi (f. 1938) starfsmann BSRB, og Kristínu (1939–2016), starfskonu Kvennalistans.
Heimild: Morgunblaðið 17. apríl 1994 og Morgunblaðið 26. júlí 2016.
- Varðveislusaga
Úr fórum afkomenda. Athugið að þetta eru ekki frumskjölin.
- Um afhendingu
Afhent 26. apríl 2001. Svanhildur Halldórsdóttir (f. 1938) afhendir gögn um og eftir móður sína, Halldóru Sigurjónsdóttur, kennara og skólastjóra við Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum í Reykjadal. Um er að ræða eftirrit Svanhildar af ræðum o.fl. Gögnum móður sinnar ásamt stuttri samantekt um ævi Halldóru og útskýringu á því hvernig unnið er upp úr handritum Halldóru. Frumritin eru í vörslu Svanhildar en þau eru að hennar sögn mjög torlesin. (Halldóra Sigurjónsdóttir)
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Ljósrit eða uppskriftir af ræðum, bréfum og öðrum skjölum tengdum Halldóru Sigurjónsdóttur og störfum hennar sem kennara og skólastjóra.
- Viðbætur
Óvíst hvort von sé á frumgerðum.
- Frágangur og skipulag
Um er að ræða eftirrit Svanhildar Halldórsdóttur, dóttur Halldóru, en frumritin munu vera sundurlaus og erfið aflestrar. Svanhildur „púslaði” þeim saman. Athugasemdir hennar er að finna við flest eftirritin.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Staðsetning frumrita
Frumgerðir eru í eign og varðveislu afhendingaraðila/afkomanda, Svanhildar Halldórsdóttur.
- Staðsetning afrita
Endurgerðirnar eru varðveittar í þessu safni á Kvennasögusafni.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Erla Hulda Halldórsdóttir skráði við afhendingu. Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt 3. febrúar 2021.
- Reglur eða aðferð
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar
- Skráð árið 2001. Endurskráð 3. febrúar 2021.
Skjalaskrá
askja 1
- örk 1:
- Húsmæðraskóli Þingeyinga á Laugum, skráð um og eftir 1960, af Halldóru Sigurjónsdóttur. [uppskrifað]
- Viðtal við Halldóru og kynning á skólanum í Tímanum 1962. [ljósrit]
- Yfirlit yfir skólahald Húsmæðraskólans á Laugum. Ljósrit úr skrá um unna muni o.fl.
- örk 2: Ræða Halldóru á 25 ára afmæli skólans 1954 ásamt fl. gögnum v. afmælið. [uppskrifað og ljósrit]
- örk 3: Bréf. Rannveig Kristjánsdóttir til Halldóru 11. maí 1947 um byggingu skólahúss o.fl. [ljósrit]
- örk 4: Bréf Halldóru og Kristjönu Pétursdóttur 1929-30 þar sem Kristjana biður Halldóru að koma til starfa við húsmæðraskólann. [ljósrit]
- örk 5: Skólaslita- og setningarræður Halldóru 1952–1964. [uppskrifað]
- örk 6: Ýmislegt:
- Stutt æviágrip Halldóru, tekið saman af Svanhildi dóttur hennar. [uppskrifað eða ljósrit]
- Sýnishorn af rithönd hennar (ljósrit af bls. – góðri að sögn – úr handriti hennar)
- Ljósrit af ljóði Ásu Ketilsdóttur frá Fjalli, 1988.
- Afrit af gjafabréfi velunnara Halldóru 1967, þar sem henni er afhentur sjóður í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf.
- Bréf Halldóru vegna gjafar í Skrúðgarðasjóð HÞL 1979.
- Ræða Halldóru þegar hún gaf húsmæðraskólanum listaverkið „Ljóðið við rokkinn” eftir Ásmund Sveinsson árið 1970