Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 151
- Titill
- Borghildur Óskarsdóttir
- Tímabil
- 1975
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 151. Borghildur Óskarsdóttir. Ljósmyndasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Borghildur Óskarsdóttir (f. 1942)
- Lífshlaup og æviatriði
Var nemi í myndlista- og handíðaskólanum þegar hún tók myndirnar.
- Varðveislusaga
Úr fórum hennar sjálfrar.
- Um afhendingu
Borghildur afhenti gögnin á skrifstofu Kvennasögusafns 21. október 2015. Í kjölfar skráningar 2019 og samskipta í kringum það sendi hún einnig viðtal sem tekið var við hana í þýsku blaði og birtist 18. október 2015.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Filma að 17 ljósmyndum sem Borghildur tók á Kvennafrídaginn 1975, auk skýringa.
Viðtal við þýskt blað frá 2015, útprent.
- Grisjun
Engu var eytt.
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd. Ljósmyndara skal ávallt getið þegar myndirnar eru notaðar. Einungis skal nota ljósmyndirnar með leyfi ljósmyndara.
- Tungumál
- Íslenska og þýska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 1. Kvennafrí 1975. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skráði og setti á safnmarkið KSS 151 í október 2019.
Tón- og myndsafn gerði afrit sem eru geymd rafrænt hjá Kvennasögusafni.
- Dagsetning lýsingar
- 7. október 2019
Skjalaskrá
askja 1
- Filma með 17 ljósmyndum frá Kvennafrídeginum 24. október 1975. Þær sýna morgunfund í Myndlista- og handíðaskólanum, fólkstreymi að fundinum úr Stórholti, föður með börn sín á Teiknistofunni á Óðinstorgi, dætur Borghildar á fundinum, mannfjölda á Lækjartorgi og opið hús í Lindarbæ.
- Útskýringar Borghildar á myndunum, hvar þær eru teknar og hverjir eru á þeim.
- Samkvæmt ábendingu frá Kristínu Ástgeirsdóttur þá eru tónlistarkonurnar þrjár á mynd 17 Aagot Óskarsdóttir (síðar lögfræðingur), Jóna Dóra Óskarsdóttir (síðar víóluleikari og þýðandi) og Jóhanna Þórhallsdóttir (síðar söngkona, kórstjóri og myndlistarkona). Þær voru saman í hljómsveit í MH, Diabolus in Musica, sem átti eftir að gefa út tvær plötur.
- Viðtal í Tagesspiegel 18. október 2015.