Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 129
- Titill
- Helga Jóhannesdóttir
- Tímabil
- ca. 1984–1985
- Umfang
Fjórar öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 129. Helga Jóhannesdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Helga Jóhannesdóttir (1935–2006)
- Lífshlaup og æviatriði
Fædd 28. desember 1935. Lést 3. júní 2006. Helga giftist 31. desember 1953 Jóni Samsonarsyni handritafræðingi í Reykjavík, f. 1931. Þau eignuðust fjórar dætur. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955 stundaði Helga nám í tónlistarfræðum við Kaupmannahafnarháskóla og vann alla tíð að söfnun, varðveislu og útbreiðslu íslenskrar þjóðlagatónlistar. Helga var virk í kvennabaráttu og friðarstarfi og var einn af frumkvöðlum Kvennalistans.
- Varðveislusaga
Úr dánarbúi Helgu.
- Um afhendingu
Heiðbrá Jónsdóttir, dóttir Helgu, færði Kvennasögusafni þrjá pappakassa með gögnum úr dánarbúi Helgu Jóhannesdóttur 16. ágúst 2007. Gögnin eru annars vegar um stofnun og rekstur Kvennalistans frá upphafi, en Helga var virk í starfi Kvennalistans, og hins vegar um friðarferð kvenna um Evrópu 1985 og önnur friðarmál. Gögnin borin saman við það sem fyrir er í Kvennasögusafni.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Fjórar öskjur
- Grisjun
Óvíst. Mögulega var eitthvað fært yfir í safn KSS 11 eða grisjað.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 11. Kvennalistinn. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Flokkað af Auði Styrkársdóttur. Rakel Adolphsdóttir færði á KSS safnmarkið, gerði lýsandi samantekt og skráði rafrænt í janúar 2019.
- Dagsetning lýsingar
- 17. janúar 2019
Skjalaskrá
askja 1
Ýmislegt, aðallega fréttablöð Kvennaframboðs og Kvennalista og annað þeim viðkomandi.
askja 2
- Norræn friðarráðstefna í Kaupmannahöfn 1984
- Almannavarnarnefnd Reykjavíkur
- Friðarmál Kvennaframboðs; stefna, stefnuskrár Kvennalistans
- Bréf; Guðrún Jónsdóttir, Reykjavík, 1985; kort, Guðrún og Hanna Maja, ódagsett, óstaðsett í Bandaríkjunum; bréf frá Sigrúnu Drífu til pabba síns (Jóns Samsonarsonar) úr ferð með Kvennarútunni (sjá KSS 11, askja 416)
askja 3
Stóra friðarferðin 1985
askja 4
Stóra friðarferðin 1985