Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Minningagjafasjóður Landspítala Íslands. KSS 122.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 122
Titill
Landsspítalasjóður Íslands og Minningagjafasjóður Landspítala Íslands
Tímabil
1915–1985
Umfang

22 öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 122. Landsspítalasjóður Íslands og Minningagjafasjóður Landspítala Íslands. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Landsspítalasjóður Íslands (st. 1916)

Minningagjafasjóður Landspítala Íslands (st. 1930)

Lífshlaup og æviatriði

Af vef Minningagjafasjóðs Landspítala Íslands:

Ágrip af sögu Minningargjafasjóðs Landspítala Íslands

Konur á Íslandi hlutu kosningarétt og kjörgengi 19. júní 1915. Haldinn var fjölmennur kvennafundur á Austurvelli í Reykjavík 7. júlí 1915 til að fagna þessum réttindum. Þar hélt Ingibjörg H. Bjarnason, forstöðukona Kvennaskólans, ræðu og skýrði frá því að stofnun Landspítala væri það málefni sem konur mundu berjast fyrir nú þegar þær hefðu öðlast rétt til þátttöku í opinberum málum. Kvað hún konur um land allt mundu hefja fjáröflun til byggingar Landspítala og beita áhrifum sínum til að fá Alþingi og Landsstjórn til að taka málið til undirbúnings og framkvæmda. Reyndar hafði Alþingi fjallað um ,,Landsspítalamálið” allt frá 1845, er Jón Sigurðsson vakti fyrstur máls á því, til ársins 1901 en það ár lá fyrir Alþingi frumvarp um byggingu 24 rúma spítala. Alþingi barst þá bréf frá St. Jósefs systrum í Landakoti með tilboði um að reisa 35 rúma spítala ef Landssjóður veitti lán til byggingarinnar og árlegan styrk til reksturs. Var frumvarpið um Landspítala þá snarlega fellt, sem og tillaga um lán og styrki til Landakotsspítala, en hann reis samt og var vígður 16. október 1902. Eftir það hljóðnuðu umræður alþingismanna alveg um stofnun Landspítala þar til barátta kvenna ýtti við þeim. 19. júní 1916 stóðu konur í Reykjavík fyrir skemmtunum til fjáröflunar víða um borgina. Var þar gerð skilagrein fyrir fjársöfnun til ,,Landsspítalasjóðs Íslands”, lýst yfir stofnun sjóðsins og lesin upp skipulagsskrá hans. Í árslok 1925 voru í Landspítalasjóði tæpar 282 þús. krónur. Á árunum 1925-1928 voru alls veittar 300 þús. krónur úr honum til byggingar Landspítala. Árið 1933 styrkti sjóðurinn stofnun kynsjúkdómadeildar og 1948 fæðingardeild Landspítala. Frá upphafi tók Landspítalasjóði að berast fé til minningar um látið fólk. Var því haldið aðgreindu í sérsjóði, Minningargjafasjóði Landspítala Íslands, sem var ætlað að styrkja fátæka sjúklinga til spítalavistar. Stjórnir sjóðanna voru skipaðar konum eingöngu og var Ingibjörg H. Bjarnason formaður beggja til dánardags 30. október 1941. Skipulagsskrá Minningargjafasjóðs var staðfest 13. október 1930. Brátt komst sú hefð á að fólk afhenti minningargjafir á Landssímastöðvum og þaðan voru send samúðarskeyti eða minningarkort. Árið 1939 veitti Landssíminn leyfi til að hringja mætti í símanúmer ritsímans til að fá samúðarskeyti sent. Eftir sölu Landssímans tók Íslandspóstur, nú Pósturinn, við þessu hlutverki í okt. 2005. Fyrsti styrkur úr Minningargjafasjóði, 84 krónur, var veittur 1931 sjúklingi er þurfti að greiða fyrir sjúkrahússvist. Eftir stofnun almennra sjúkrasamlaga árið 1936 fengu félagar í þeim ókeypis sjúkrahússvist hér á landi. Síðar á öldinni fjölgaði sjúklingum er þurftu að fara til útlanda til aðgerða, oftast hjartaaðgerða. Höfðu þeir yfirleitt fylgdarmann með sér og sóttu um styrki til Minningargjafasjóðsins vegna kostnaðar við flugfar hans og dvöl í viðkomandi borg. Hlutu mjög margir sjúklingar þessa styrki, á annað hundrað á ári, þegar mest var. Hjartaaðgerðir hófust hér á landi árið 1986. Eftir það dró smám saman úr fjölda þeirra sem þörfnuðust sjúkrahússvistar erlendis. Nú orðið eru þeir fáir og hefur úthlutun styrkja þeirra vegna því fækkað mjög. Árið 1961 var bætt við ákvæði í skipulagsskrá Minningargjafasjóðs, sem heimilaði að árlega yrði hluti tekna sjóðsins ætlaður Landspítala og úthlutað fjórða hvert ár. Slík úthlutun fór fyrst fram árið 1966. Nam hún 350 þús. krónum sem að ósk forráðamanna spítalans var varið til stofnunar Vísindasjóðs Landspítalans. Síðan hefur úthlutun fjár úr sjóðnum til Landspítala farið fram fjórða hvert ár og verið varið til kaupa á tækjum samkvæmt vali tækjakaupanefndar spítalans. Heimildir: Fundargerðir stjórna Landspítalasjóðs Íslands og Minningargjafasjóðs Landspítala Íslands. Ingibjörg H. Bjarnason. Ræða 7. júlí 1915. Iðunn 1. árg. 1915, bls. 125-128. Doktor Bjarni Jónsson. Á Landakoti, bls. 19-25. Setberg 1990. Doktor Guðrún P. Helgadóttir. Ávarp. Landspítalinn 50 ára, bls. 61-62. Ríkisspítalar 1980. Gunnar M. Magnúss. Landspítalabókin, bls. 42-46. Ríkisspítalar 1981.
Varðveislusaga

Gögnin afhenti stjórn Minningagjafasjóðsins.

Um afhendingu

Afhent á Kvennasögusafni Íslands 27. mars 2003.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

22 öskjur

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er takmarkaður að hluta
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Tengt efni

KSS 2018/17. Ingibjörg H. Bjarnason. Einkaskjalasafn.

KSS 2021/22. Minningagjafasjóður Landspítala Íslands. Einkaskjalasafn.

KSS 2024/18. Minningagjafasjóður Landspítala Íslands. Einkaskjalasafn.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir skráði. Rakel Adolphsdóttir setti á KSS safnmark og tók saman lýsandi samantekt 14. ágúst 2020.

Dagsetning lýsingar
14. ágúst 2020

Skjalaskrá

Askja 1

  • Fundargjörðabók stjórnar Landspítalasjóðs Íslands, 17.1. 1918-28.1. 1924
  • Fundargjörðabók stjórnar Landspítalasjóðs Íslands, 25.4. 1924-23.1. 1939
  • Fundargjörðabók stjórnar Landspítalasjóðsnefndar 6. martz 1939-6. martz 1948 (í bókina er einnig færður fundur stjórnar 30. ágúst 1950.  – Utan á bókina er ritað að með henni fylgi bréf til heilbrigðismálaráðuneytisins dags. 11. júní 1948.  Það er ekki að finna þar nú, en hins vegar bréf  til stjórnar Minningagjafasjóðs Landsspítala Íslands, dags. 30. ág. 1950, þar sem sjóðurinn er beðinn að taka við fundargerðabókum og skjölum varðandi störf Landsspítalasjóðs Íslands, árin 1918 til þessa dags. Bréfið liggi fremst í bókinni)
  • Ársreikningabók Landsspítalasjóðs 1916-1932; Minningagjafasjóðs 1918-1926
  • Viðskiptabók við Söfnunarsjóð Íslands, í eigu Kvenfélags Fríkirkjusafnaðarins frá 1911
  • Í umslagi: ársreikningur Minningargjafasjóðs Landsspítalans 1923, skrifað af Ingibjörgu H. Bjarnason
  • Auglýsingaspjald um sölu póstkorta fyrir Landspítalasjóð
  • Happdrættismiði 1920
  • Hátíðisdagur kvenna 19. júní 1916- dagskrá
  • Almennur kvennafundur í Rvk. 7. júlí 1915 – dagskrá
  • Hátíðisdagur kvenna 19. júní 1916-söngtextar
  • Minni kvenna eftir Stephan G. Stephansson. Landsspítalasjóðsdagurinn 19. júní, 1917
  • Landsspítalinn; söngtextar 15. júní 1926

askja 2

  • Fundargerðir Minningagjafasjóðs Landsspítalans, 1926-1939 (inni í bókinni liggja þrjú bréf: frá sjóðsstjórn til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, dags. 27. júní 1933, frá sjóðsstjórn til Þuríður Báðardóttur, dags. 24. jan. 1935, og samningur milli sjóðsstjórnar og Fjelags íslenskra símamanna, dags. 25. jan. 1934)
  • Fundargerðir Minningagjafasjóðs Landsspítalans, 1940-1964 (ath. Bókin er merkt “Minningargjafir Landsspítalans c/o Ásta Þorsteinsdóttir). Í bókinni liggja nokkur bréf, lausar fundargerðir og blaðaúrklippur)
  • Fundarbók Minningargjafasjóðs Landsspítala Íslands, 1964-1980
    ath. fyrsta fundargerðabókin er á Þjóðskjalasafni

askja 3

  • Sjóðbók 1947-1972
  • Kassabók 1922-1946
  • Minningagjafir til Landspítalasjóðsins, 1916-1918
  • Minningagjafir til Landspítalans (bók merkt kladdi), 1916-1918

askja 4

  • Ársreikningar Minningagjafasjóðs Landsspítalans, 1926-1943
  • Ársreikningar Minningagjafasjóðs Landsspítalans, 1944-1966
  • Styrkveitingar úr Minningagjafasjóði Landssppítalans, 1931-1985
  • Minningargjafir Landsspítalans afhentar fr. Lilju Kristjánsdóttur
  • Sjóður Marzibilar Illugadóttur
  • Ársreikningar Minningjargjafar Guðjóns Björnssonar og Guðlaugar Jónsdóttur
  • Minningagjafir til Landsspítala Íslands meðteknar af frú Önnu Oddbergsdóttur, Sandfelli (tóm)
  • Minningagjafir til Landsspítalasjóðs Íslands mótteknar af frú Laufeyju Tryggvadóttur, Vatnsfirði (tóm)

askja 5

  • Umslög, bréfsefni, eyðublöð
  • Greinargerð um Minningarsjóð Landspítalans, líkl. eftir Guðrúnu P. Helgadóttur
  • Uppkast að bréfi til dóms- og kirkjumálaráðuneytis, ódagsett
  • Ársreikningur Minningagjafasjóðs Landspítalans 1989
  • Skrár yfir útfarin samúðarskeyti 1972
  • Skrár yfir útfarin samúðarskeyti 1973, 1974
  • Frá aðalfundum 1964 og 1966
  • Ýmis bréfaskipti

Takmarkaður aðgangur er að öskjum 6–22.