Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 117
- Titill
- Kvennalistinn á Vesturlandi
- Tímabil
- 1984–1995
- Umfang
Tvær öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 117. Kvennalistinn á Vesturlandi. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Kvennalistinn á Vesturlandi, Vesturlandsangi (st. 1984)
- Lífshlaup og æviatriði
Stofnað á Akranesi 1984. Danfríður Skarphéðinsdóttir var kjörin á þing árið 1987 fyrir Samtök um Kvennalista og er fyrsta konan á Vesturlandi sem tók sæti á Alþingi. Sjá heimasíðu um Kvennalistann: http://kvennalistinn.is/vesturland1984/ og Skessuhornið 18. júní 1985 http://skessuhorn.rat.nepal.is/frettir/nr/196298/.
- Varðveislusaga
Úr fórum félagskonu
- Um afhendingu
Danfríður Skarphéðinsdóttir fyrrverandi þingkona Kvennalistans afhenti tvo kassa með gögnum 19. maí 2000.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Tvær öskjur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 10 Kvennaframboð í Reykjavík. Einkaskjalasafn.
KSS 11. Kvennalistinn. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Rakel Adolphsdóttir gerði lýsandi samantekt 7. ágúst 2020. Var flokkað áður.
- Dagsetning lýsingar
- Dagsetning: 7. ágúst 2020
Skjalaskrá
askja 1
- „Hvanneyrarráðstefnan 1988”, (erindi Kristínar Einarsdóttur um jurtir, jurtasamlag ásamt minnispunktum hennar frá ráðstefnunni), – „Frá hugmynd til framkvæmda.” Erindi á landsráðstefnu Kvennalistans á Vesturlandi í maí 1988
- Lifi landsbyggðin, dagskrá ráðstefnu um atvinnu og byggðamál í maí 1988. Erindi:
- Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Verkaskipting kynja í ýmsum þjóðfélögum
- Guðný Guðbjörrnsdóttir: Menntun og starfsval kvenna. Er þörf á breyttri menntastefnu’
- Þórir Jökull Þorsteinsson: Atgerfisflótti – sjálfsímynd byggðarlaganna
- Kveðskapur
- Framboðsfundir 1987, gestalistar
- Rekstrarreikningur 1991, bréf til Kvl. kvenna á Vesturlandi , nafna (félaga?) skrá. Símaskrá Vesturlandsanga. Undirskriftarlistar til stuðnings Kvennalistanum á Vesturlandi fyrir Alþingiskosningar 1987
- Félagsfundir Vesturlandsanga / bréf til anganna – Kvl. kvenna
- Erindi Kvl. konu á aðalfundi Landverndar (án ártals og höfundarnafns) – Erindi flutt á fundi Verkalýðsfélags Borgarness og Neytendafélags Borgarfjarðar (án ártals og höfundarnafns)
- Landbúnaðarmál. Sjávarútvegsmál. Dagvistarmál. Atvinnumál. Skólamál
- Félagsfundir Kvl. Vesturlandi. Fundargerðir, stofnfundur 1984, o.fl.
- Tillögur 1993: Breytingar á lögum Samtaka um Kvennalista. – Dagbók 1988: Vélrit þar sem lesa má hvað Kvl. kona (?) hafði fyrir stafni í opinberum störfum (á vegum Kvl.) 1988. – Skýrsla framkvæmdaráðs um starfsárið 1992-93. – Mál Kvennalistans á 112. löggjafarþingi
- Úr ómerktri möppu: Greinar Kvl. kvenna og gögn frá félagsfundum (líklega einnig frá kynningum og kosningafundum)
askja 2
- Bæklingar Vesturlandsanga [ekki árgangs eða tölublaðsmerktir, líklega sendir út fyrir kosningar- ef til vill oftar]
- Fréttabréf Vesturlandsanga
- Alþingiskosningar 1991. Kynningarbæklingur
- Alþingiskosningar 1995. Bæklingar og áróðursrit,
- Viðtöl við frambjóðendur (handrit, óljóst hvar birtist)
- Útvarpserindi Hansína B. Einarsdóttir
- Gestalistar o.fl. á kynningarfundum (v. ár á flest)
- Þingmál Kvennalistans 1983-1995, efnisflokkað
- Framsaga á fundi starfsmannafélagsins í Straumsvík 21. október 1986. (v. höfund)
- Nokkrir afgangspappírar sem erfitt er að flokka