Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Teofani-samkeppnin 1930

Árið 1930 stóð heildsalinn Þórður Sveinsson og Co., sem flutti inn sígarettumerkið Teofani, fyrir viðburði sem kalla má fyrstu íslensku fegurðarsamkeppnina. Hugmyndin átti uppruna sinn í Englandi. Íslenskar konur voru hvattar til að senda inn mynd af sér, sem voru síðan fjölfaldaðar og dreift í íslensku sígarettupakkana. Upphaflega hugmyndin var sú að almenningur greiddi atkvæði með því að senda myndirnar aftur til fyrirtækisins og átti ein mynd að jafngilda einu atkvæði. Þegar til kastanna kom var hinsvegar breskur leikstjóri, Charles B. Cochrane, fenginn til að dæma um sigurvegarana. Í kjölfar fegurðarsamkeppninnar fór fram önnur samkeppni, þar sem fólk var hvatt til að safna myndunum. Sá sem yrði fyrstur til að safna öllum 50 myndunum fengi að launum útsýnisflug yfir Reykjavík. Um sama leyti stóð Tóbaksverslun ríkisins, sem flutti inn sígarettumerkið Commander, fyrir svipaðri markaðsherferð. Hjá Commander voru það hins vegar landslagsmyndir sem prýddu sígarettupakkana.

Auglýsing Tíminn 7. september 1929 bls 196
Auglýsing sem birtist í Tímanum 7. september 1929 bls 196



Úrslitin í Teofani-keppninni voru tilkynnt á Alþingishátíðinni 26. júní 1930. Þrjár stúlkur hrepptu efstu sætin og hlutu allvegleg peningaverðlaun. Skoðanir fólks á þessu uppátæki sígarettufyrirtækisins voru skiptar og sumum stúlkunum sem tóku þátt fannst tilstandið í kringum keppnina vandræðalegt. Lesa má nánar um keppnina í umfjöllun DV frá árinu 1982.

Árið 2008 stóð Kvennasögusafn Íslands fyrir átaki til að nafngreina konurnar á myndunum. Af þeim 48 myndum sem eru varðveittar hefur tekist að nafngreina allar nema sex. Kvennasögusafn þakkar öllum sem lögðu hönd á plóginn. Kvennasögusafn tekur vel á móti öllum ábendingum varðandi Teofani samkeppnina.

01 Sæunn Þorleifsdóttir 1909 1981
Sæunn Þorleifsdóttir 1909-1981
02 Magnea Jónína Magnúsdóttir 1912 2007
Magnea Jónína Magnúsdóttir 1912-2007
03 Hildur Grímsdóttir 1912 2001 einnig 39
Hildur Grímsdóttir 1912-2001, einnig 39
04 Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1910 1997 einnig 32
Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1910-1997, einnig 32
05 Margrét Magnúsdóttir 1888 1970
Margrét Magnúsdóttir 1888-1970
06 Ingibjörg Auður Matthíasdóttir t.v. 1911 2002 og Kristín Pálsdóttir 1911 1999
Ingibjörg Auður Matthíasdóttir t.v. 1911-2002 og Kristín Pálsdóttir 1911-1999
07 Guðrún Kristinsdóttir 1911 1995
Guðrún Kristinsdóttir 1911-1995
08 Rannveig Ólafsdóttir 1906 1969
Rannveig Ólafsdóttir 1906-1969
09  Hulda Brynjólfsdóttir 1911 1978
Hulda Brynjólfsdóttir 1911-1978
10 Fanney Guðmundsdóttir
Fanney Guðmundsdóttir
11 Hanna Valdís Gisladóttir 1908 2001
Hanna Valdís Gisladóttir 1908-2001
12 Jakobína Ragnheiður  Guðmundsdóttir 1880 1952
Jakobína Ragnheiður Guðmundsdóttir 1880-1952
13 Ólafía Sigurðardóttir 1900 1970
Ólafía Sigurðardóttir 1900-1970
14 Sigríður Sigursteinsdóttir 1915 1994
Sigríður Sigursteinsdóttir 1915-1994
15 Aðalbjörg Sigfúsdóttir 1912 1960
Aðalbjörg Sigfúsdóttir 1912-1960
16 óþekkt
óþekkt
17 Þuríður Guðlaug Gísladóttir 1909 1971
Þuríður Guðlaug Gísladóttir 1909-1971
18 Unnur Stefánsdóttir 1912 2004
Unnur Stefánsdóttir 1912-2004
19 Katrín Ólafsdóttir 1912 1998
Katrín Ólafsdóttir 1912-1998
20 óþekkt
óþekkt
21 Ólöf Björnsdóttir 1903 1981
Ólöf Björnsdóttir 1903-1981
22 óþekkt
óþekkt
23 Sigríður Gíslína Guðmundsdóttir 1912 1998
Sigríður Gíslína Guðmundsdóttir 1912-1998
24 Ólafía Sigurðardóttir 1913 2001
Ólafía Sigurðardóttir 1913-2001
25 Magnea Guðrún Ágústsdóttir 1913 1988
Magnea Guðrún Ágústsdóttir 1913-1988
26 Guðrún Benediktsdóttir 1912 1972
Guðrún Benediktsdóttir 1912-1972
27 Guðmunda Línberg Brandfríður Óladóttir 1896 1963
Guðmunda Línberg Brandfríður Óladóttir 1896-1963
28 óþekkt
óþekkt
30 Sigurbjörg Lárusdóttir
Sigurbjörg Lárusdóttir
31 Fanney Tómasdóttir 1912 2001
Fanney Tómasdóttir 1912-2001
32 Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1912 1997 sjá nr. 4
Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1912-1997, sjá einnig nr. 4
33 Kristín Bjarnadóttir 1905 1971 systir 32
Kristín Bjarnadóttir 1905-1971, systir nr. 32
34 Jóhanna Eiríksdóttir 1908 2007
Jóhanna Eiríksdóttir 1908-2007
35 Sigurbjorg Lárusdóttir sama og 30
Sigurbjorg Lárusdóttir, sama og nr. 30
36 óþekkt
óþekkt
37 Alfa Regína Hraundal 1911 1965
Alfa Regína Hraundal 1911-1965
39 Hildur Grímsdóttir 1912 2001 sama og nr 3
Hildur Grímsdóttir 1912-2001, sama og nr 3
40 Sigurbjörg Ólasdóttir 1898 1985
Sigurbjörg Ólasdóttir 1898-1985
41 Ólafía SIgurðardóttir sama og nr 24
Ólafía Sigurðardóttir, sama og nr. 24
42 Þórunn Jóna Þórðardóttir 1911 1996
Þórunn Jóna Þórðardóttir 1911-1996
43 Soffía Jóhannesdóttir 1902 1984
Soffía Jóhannesdóttir 1902-1984
44 óþekkt
óþekkt
45 Sigurbjort Klara Luthersdottir 1911 2008
Sigurbjort Klara Luthersdottir 1911-2008
46 Sigþrúður Einarsdóttir síðar Thorderson 1909 2006
Sigþrúður Einarsdóttir (síðar Thorderson) 1909-2006
47 Sigrún Hjördís Stefánsdóttir 1909-1982
Sigrún Hjördís Stefánsdóttir 1909-1982
48 Jakobína Hansína Hansdóttir Beck síðar Schröder 1909 2005
Jakobína Hansína Hansdóttir Beck (síðar Schröder) 1909-2005
49 Guðrún Helga Theodórsdóttir 1907 1991
Guðrún Helga Theodórsdóttir 1907-1991
50 Steinunn Finnbogadóttir 1907 1999
Steinunn Finnbogadóttir 1907-1999

*Fyrst birt árið 2008. Síðast uppfært 23. júní 2020.