
Fædd 6. ágúst 1881 og látin 10. apríl 1946.
Hún birti verk sín undir skáldanafninu Hulda og orti m.a. þjóðhátíðarljóðið Hver á sér fegra föðurland. Hulda giftist Sigurði Sigfússyni árið 1905 og tóku þau sér ættarnafnið Bjarklind. Þau bjuggu í Húsavík 1918-1935 en eftir það í Reykjavík. Bréfi voru afhent á Kvennasögusafn árið 1993 og eru aðgengileg á rafrænann máta, ýta þarf á hlekk við hvert bréf til að skoða þau.
Einnig má finna skjöl Unnar á handritasafni Lbs.-Hbs., Héraðsskjalasafninu á Akureyri og Héraðsskjalasafni Þingeyinga á Húsavík.
Tilvísun: KSS 142. Unnur Benediktsdóttir Bjarklind. Einkaskjalasafn.
Skjalaskrá
A Bréf frá Unni til tengdamóður sinnar, Sigríðar Jónsdóttur frá Hömrum Reykjadal
- Húsavík 13. desember 1927
- Húsavík 20. desember 1932
- Reykjavík 22. febrúar 1937
- Reykjavík 23. ágúst 1938
- Reykjavík 7. desember 1938
- Reykjavík 10. nóvember 1939
- Reykjavík 16. desember 1939
- Reykjavík 19. mars 1940
- Reykjavík, án dagsetningu og ártals
B Bréf frá Sigurði til móður sinnar
C Fylgigögn
- Nóta frá Ágústu Björnsdóttur sem segir frá afhendingunni, 16. febrúar 1993
- Skýring Hrannar Benónýsdóttur varðandi fund bréfanna, 15. nóvember 1992
- Miði Önnu Sigurðardóttir vegna skráningar bréfanna, 28. febrúar 1993

*Kvennasögusafn Íslands er skjala- og upplýsingasafn um sögu kvenna. Við tökum við hvers kyns einkaskjölum; bréfum, dagbókum, fundargerðarbókum o.s.frv. Hafið samband til að afhenda slík skjöl.*
* Höfundur: Rakel Adolphsdóttir
*Síðast uppfært 5. september 2019