Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Ásta Magnúsdóttir (1888-1962)

sta Magnúsdóttir ríkisféhirðirÁsta Magnúsdóttir var skipuð ríkisféhirðir þann 1. október 1933 og gegndi stöðunni í aldarfjórðung. Hún var fyrsta konan sem hlaut opinbera embættisstöðu hér á landi.

Ásta hafði unnið á skrifstofu ríkisféhirðis frá árinu 1910. Hún var fyrst fengin til að gegna stöðunni til bráðabirgða eftir að forveri hennar hætti störfum en var svo skipuð í embættið. Hún sagði síðar, í viðtali við tímaritið „19. júní“ að kvennasamtök í landinu hafi haft mikið um það að segja að henni hafi verið veitt embættið: „Ýmis kvenfélög sendu skriflega áskorun til ríkisstjórnarinnar um að veita mér embættið. Tel ég, að það hafi verið almennur vilji kvenna í landinu, að ég hlyti það.“ [Heimild]

Ásta vann á skrifstofu ríkisféhirðis frá árinu 1910 og lét hún af störfum sem ríkisféhirðir þegar hún fór á eftirlaun árið 1958. Hún hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1946 og stórriddarakross sömu orðu 1958.

*Kvennasögusafn Íslands er skjala- og upplýsingasafn um sögu kvenna. Við tökum við hvers kyns einkaskjölum; bréfum, dagbókum, fundargerðarbókum o.s.frv. Hafið samband til að afhenda slík skjöl.*

laufeyvald 023 ljósm Pétur Brynjólfsson, Mms 576, söngfélagið gígjan
Söngfélagið Gígjan 1. Guðrún Sigurðardóttir. 2. Sigríður Hermanns. 3. María Ólafsdóttir. 4. Bergljót Lárusdóttir, kennslukona. 5. Sigríður Ziemsen, 6. Valgerður Lárusdóttir, 7. Laufey Valdimarsdóttir, 8. Hildur Thorarensen, 9. Sigríður Magnúsdóttir, 10. Þóra Halldórsdóttir, 11. Kristín Símonarson, 12. Ingibjörg Ólafsdóttir 13. Inga (Guðrún) Magnúsdóttir, 14. Anna Sveinsdóttir, 15. Sólveig Björnsdóttir frá Gröf, 16. Fjóla Stefánsdóttir (forst.k.) 17. Guðrún Björnsdóttir frá Gröf 18. Ágústa Ólafsdóttir, 19. Benedikta Lárusdóttir. 20. Ásta Magnúsdóttir. 21. Anna Erlendsdóttir, 22. Gróa Bjarnadóttir, 23. Kristín Thorlacius. 24. Guðrún Daníelsdóttir, kennslukona.

sta Magnúsdóttir Skrifstofa landféhirðis t.f.v. Ásta Magnúsdóttir (síðar ríkisféhirðir) og Valgarð Claessen landsféhirðir.sta Magnúsdóttir riddarakross

Kvennasögusafn Íslands tekur við skjalasöfnum – bréfum, dagbókum o.þ.h. – frá einstaklingum og félagasamtökum. Hafðu samband ef þú vilt afhenda skjöl.