Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni

Kjörgripur Landsbókasafns í nóvember

VIÐ ERUM MARGAR, 50 ára afmælissýning Kvennasögusafns, opnaði í Þjóðarbókhlöðunni þann 17. október 2025. Á sýningunni eru teknar fram 18 konur úr safnkosti Kvennasögusafns sem unnu margvísleg störf á 20. öldinni. Ein þeirra var Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887–1971) og eru skjöl hennar kjörgripur Landsbókasafns í nóvember. Ingibjörg fæddist að Sogni í Kjós. Hún var vinnukona í…

Lesa meira : Kjörgripur Landsbókasafns í nóvember

Kjörgripur mánaðarins: Póesíbók Kristínar Vídalín Jacobson

Nú í febrúar eru liðin 160 ár frá fæðingu Kristínar Vídalín Jacobson (1864–1943), stofnanda og fyrsta formanns Hringsins sem fagnaði einmitt 120 ára stofnafmæli sínu í janúar síðastliðnum. Þá átti hún hlut í stofnun Bandalags kvenna í Reykjavík 1917 og sat um tíma í stjórn þess. Kristín var lærð myndlistarkona en hún var við Kvennakademíuna…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins: Póesíbók Kristínar Vídalín Jacobson

Kjörgripur mánaðarins: Hringurinn í 120 ár

Kvennasögusafn óskar Hringnum hjartanlega til hamingju með 120 ára stofnafmæli sitt í dag! Skjalasafn félagsins var afhent Kvennasögusafni til varðveislu árið 2004 í kjölfar glæsilegrar útgáfu á starfssögu þess sem Björg Einarsdóttur ritaði og Hið íslenska bókmenntafélag gaf út í samstarfi við Hringinn árið 2002. Skjalasafnið er kjörgripur janúarmánaðar Landsbókasafns og upp hefur verið settur…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins: Hringurinn í 120 ár

Reiða stelpan

Kjörgripur októbermánaðar á Landsbókasafni er teikning úr skjalasafni Rauðsokkahreyfingarinnar sem er til varðveislu á Kvennasögusafninu. Hreyfingin notaði myndefni markvisst í baráttu sinni fyrir jafnrétti og bættum kjörum kvenna, bæði teikningar eftir meðlimi í hreyfingunni en einnig fundið efni svosem úrklippur úr erlendum tímaritum.  Þessi teikning, ‚Reiða stelpan‘, er dæmi um fundna teikningu sem birtist endurtekið…

Lesa meira : Reiða stelpan

Kjörgripur mánaðarins: Tengdamamma eftir Kristínu Sigfúsdóttur

Kjörgripur júlímánaðar er leikritið Tengdamamma, eftir Kristínu Sigfúsdóttur, sem var gefið út á bók árið 1923 vegna vinsælda sinna. Það var samið ár 1920 og sett á svið ári síðar víða um Eyjafjörð og á Akureyri en einnig í Iðnó í Reykjavík árið 1923. Það var eitt af fáum leikritum eftir íslenska konu sem sýnd voru…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins: Tengdamamma eftir Kristínu Sigfúsdóttur

Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni

Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni er að þessu sinni úr safnkosti Kvennasögusafns. Í safni Valgerðar Lárusdóttur Briem (1885-1924) má finna átta handskrifuð blöð af ritinu Húsmæðrablaðið sem hún setti saman árið 1916. Blöðin voru ætluð félagskonum í Húsmæðrafélagi Hrafnagilshrepps. Handritið má sjá á sýningunni Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir á 1. hæð Þjóðarbókhlöðunnar en það má einnig lesa á heimasíðu okkar. Valgerður Lárusdóttir Briem…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni