Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Nanna Kaaber (1918–2011), fararstjóri. KSS 2017/9.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 2017/9
Titill
Nanna Kaaber
Tímabil
1937–1941
Umfang

Þrír munir

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2017/9. Nanna Kaaber. Einkaskjalasafn

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Nanna Kaaber (1918–2011), fararstjóri 

Lífshlaup og æviatriði

Nanna Ida Kaaber fæddist í Reykjavík 21. maí 1918; lést 5. maí 2011.

Foreldrar: Ludvig Emil Kaaber frá Danmörku, og kona hans Astrid Bertine, f. Thomsen. Alsystkini Nönnu voru Gunnar Georg, f. 1908, d. 1949, Axel Jóhannes, f. 1909, d. 1999, Sveinn Kjartan, f. 1909, d. 1990, Knud Albert, f. 1914, d. 1915, Eva Ásta, f. 1916, d. 1933, Ragnar Eiríkur, f. 1919, d. 1958, Elín Margrét, f. 1922, Knud Albert, f. 1922, d. 1989. Samfeðra systkin Nönnu voru Edda Kristín, f. 1931, Astrid Sigrún, f. 1932, Edwin Mikael, f. 1935 og Eggert Matthías, f. 1939, d. 1945.

Nanna giftist 22.9. 1945 Bjarna Árnasyni, f. 1918, d. 2004, þau skildu. Foreldrar hans voru Árni S. Bjarnason, f. 1879, d. 1969 og kona hans Björg Stefánsdóttir, f. 1880, d. 1968. Þau eignuðust tvö börn.

Kornung dvaldi Nanna með foreldrum sínum á Borgundarhólmi um skeið. Hún ólst svo upp á Hverfisgötu 28 og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur. Nanna starfaði við skrifstofustörf um tíma, en lærði svo garðyrkju í Fagrahvammi í Hveragerði. Hún nam garðyrkju- og blómaskreytingar í Árósum og kom heim með síðustu ferð Gullfoss fyrir stríð 1939. Nanna stofnaði blómabúðina Garð við Garðastræti ásamt með Stefáni Árnasyni. Árið 1959 hóf hún að vinna hjá danska sendiráðinu og starfaði þar í 30 ár, fram til ársins 1988 þegar hún stóð á sjötugu. Nanna var einn af stofnendum ferðafélagsins Útivistar, sat í kjarna þess frá upphafi og var heiðursfélagi. Hún var fararstjóri í áratugi og fór í sína síðustu ferð sem slíkur árið 2005, þá 87 ára.

Varðveislusaga

Úr fórum ættmenna. Árni Emil Björnsson, sonur Nönnu, afhenti.

Um afhendingu

Afhent 25. ágúst 2017.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

1 lítið kort: Medlemskort DEN UNGE GARTNER 1937-1938
Áfengisbók fyrir konur 1941
Brjóstnæla [án nælu] með áletruninni ”Abel”

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska og danska.

Tengt efni

Tengt efni

KSS 67. Nanna Kaaber. Einkaskjalasafn.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Viðbót við skjalasafn Nönnu Kaaber, KSS 67. Rakel Adolphsdóttir skráði.

Skjalaskrá

  • 1 lítið kort: Medlemskort DEN UNGE GARTNER 1937-1938
  • Áfengisbók fyrir konur 1941
  • Brjóstæla [án nælu] með áletruninni ”Abel”