Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 158
- Titill
- Björg C. Þorláksson munir
- Tímabil
- óvíst
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 158. Björg C. Þorláksson. Munir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Björg C. Þorláksson (1874–1934), málfræðingur, heimspekingur, lífeðlisfræðingur og rithöfundur. Fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi.
- Lífshlaup og æviatriði
„Fædd 30. jan. 1874 að Vesturhópshólum, Húnavatnssýslu, dóttir Þorláks Þorlákssonar og Margrétar Jónsdóttur. Gekk á kvennaskóla á Ytri-Ey á Skagaströnd og kenndi þar 1894, en hélt til frekara náms í Kaupmannahöfn 1897 og lauk stúdentsprófi þar 1901. Árið 1902 lauk hún forpróf í heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla, en 1903 giftist hún Sigfúsi Blöndal, hætti þá námi en átti mikinn þátt í orðabók þeirri sem við hann er kennd. Árið 1920 hlaut hún styrk úr sjóði Hannesar Árnasonar til frekara náms í heimspeki, flutti Hannesar Árnasonar fyrirlestra sína 1923–1924 og urðu þeir uppistaðan í doktorsritgerð hennar en hún lauk doktorsprófi frá Sorbonne-háskóla, fyrst norrænna kvenna, 17. júní 1926 (Le fondement physiologique des instincts, París, 1926). Sinnti einkum ritstörfum, rannsóknum og kennslu, gaf út allmargar greinar og þýðingar, og lét til sín taka í kvenréttindamálum. Lést 25. febrúar 1934.
Rannsóknir hennar þróuðust frá heimspekilegri sálarfræði yfir í lífeðlisfræði, þar sem hún fékkst við spurninguna um líkamlegan grundvöll andlegra eiginleika. Einkum er umfjöllun hennar um samúðarhugtakið frumleg og áhugaverð frá heimspekilegu sjónarmiði.
Nokkur önnur rit: Erindi um mentamál kvenna (1925), Svefn og draumar (1926), „Hvað er dauðinn?“ (Skírnir, 1914), „Samþróun líkama og sálar“ (Skírnir, 1928), „Undirrót og eðli ástarinnar“ (Skírnir, 1933).“
Heimild: Heimspekivefurinn: https://heimspeki.hi.is/?page_id=238 (síðast skoðað 7. ágúst 2020)
- Varðveislusaga
Úr fórum fjölskyldumeðlima.
- Um afhendingu
27. mars 2003: Um hendur Sigsteins Pálssonar, Hlaðhömrum 2, Mosf., bárust eftirfarandi munir: silfurskeiðar Bjargar C. Þorláksson og Sigfúsar Blöndal með ágröfnu fangamarki þeirra, kápuskjöldur Bjargar og leikhúskíkir Bjargar. Munir þessir eru úr búi Helgu Magnúsdóttur (Þorlákssonar) og Sigsteins Pálssonar.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Ein askja
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 118. Áhugahópur um minnisvarða um Björgu C. Þorláksson. Einkaskjalasafn.
KSS 2018/18. Elín Briem. Einkaskjalasafn.Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Handritasafn. Lbs 139 NF. Björg C. Þorláksson. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Rakel Adolphsdóttir setti á KSS safnmark og gerði lýsandi samantekt 7. ágúst 2020.
- Dagsetning lýsingar
- 7. ágúst 2020
Skjalaskrá
- Leikhúskíkir Bjargar
- Silfurskeiðar Bjargar og Sigfúsar Blöndal
- Kápuskjöldur Bjargar (B.C.Th.)