Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Ásdís Jóhannsdóttir (1933–1959), nemi og skáld. KSS 88.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 88
Titill
Ásdís Jóhannsdóttir
Tímabil
1948–1958
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 88. Ásdís Jóhannsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Ásdís Jóhannsdóttir (1933–1959)

Lífshlaup og æviatriði

Fædd 10. janúar 1933 í Fáskrúðsfirði, látin 21. október 1959 í Vestur-Þýskalandi. Foreldrar hennar voru þau Jóhann Árnason (1897-1950) og Jónína Kristín Benediktsdóttir (1888-1981). Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1953. Var við nám í efnafræði við náttúruvísindadeild háskólans í Göttingen í V-Þýskalandi 1953-1958 og síðan við Tækniháskólann í Darmstadt í V-Þýskalandi 1958-1959.  

Heimild: Æviskrár MA stúdenta 1945-1954, bls. 497-498. Sjá líka vef skald.is.

Varðveislusaga

Gögnin voru í varðveislu Sigríðar Jóhannsdóttur, systur Ásdísar.

Um afhendingu

Sigríður Jóhannsdóttir afhenti Kvennasögusafni gögnin þann 18 maí 2010.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Safnið inniheldur dagbók er Ásdís skrifaði í á árunum 1948-1950, þá 15-17 ára. Í hana ritaði hún afrit af bréfum er hún sendi systur og vinkonum, ljóð er hún orti, hugleiðingar um eitt og annað og lýsingu á degi í gagnfræðaskóla. Einnig stílabók með handskrifuðum ljóðum og vélrituð ljóð er birtust í bók hennar Vængjaþytur vorsins (2002).

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Sigríður Jóhannsdóttir afhenti dagbókina og stílabókina og síðan vélrituðu ljóðin í plastumbúðum. Auður Styrkársdóttir raðaði efninu, fjarlægði plastumbúðir og gekk frá í öskju. Hún skrifaði einnig lýsingu í maí 2009 og setti á safnmark KSS.

Dagsetning lýsingar
maí 2009

Skjalaskrá

Askja 1

  1. Ljóð eftir Ásdísi (birtust flest í bók hennar Vængjaþytur vorsins) vélrituð á blöð
  2. Eyðublað til útfyllingar fyrir Æviskrár MA stúdenta – Dómur um bókina Vængjaþytur vorsins, tekið af vefnum www.ljod.is – Skólavísur 1947 – Ljósrit úr Verkamanninum 13. Mars 1953 af ræðu er Ásdís flutti á almennum fundi um friðarmál í Alþýðuhúsinu á Akureyri – Ræða er Ásdís flutti 1948 sennilega, “Íþróttalíf Íslendinga”
  3. Dagbók 1948-1949
  4. Stílabók með ljóðum