Kaflabrot úr bók Sigríðar Th. Erlendsdóttur Veröld sem ég vil. Reykjavík, 1993, bls. 150-152:
„Frumkvæði að fyrsta landsfundi KRFÍ kom frá Laufeyju Valdimarsdóttur þegar hún á félagsfundi í nóvember 1922 stakk upp á því að bjóða „nokkrum sveitakonum“ á almennan fund í Reykjavík að vori. Tilgangurinn var að konu ræddu áhugamál sín auk þess sem fundurinn átti að vera þeim til fróðleiks og skemmtunar. Þessi uppástunga fékk þegar í stað góðar undirtektir. Elín Jónatansdóttir lagði til á sama fundi að halda jafnframt námskeið eða sýningu á búsáhöldum sem komið gæti konum að gagni. Boðsbréf voru send ýmsum konum út um land og á aðalfundi í mars 1923 kemur fram að undirtektir voru góðar. Félagskonur hófust þegar handa og tóku á leigu þrjár skólastofur í Iðnskólanum til fundarhaldsins. Laufey skrifaði formönnum húsmæðrafélaga í Danmörku og Bandaríkjunum og fékk þaðan upplýsingar varðandi eldhússýninguna. Bríet sótti um tvö þúsund króna styrk til Alþingis og hvatti félagskonur sem „einhverja þingmenn þekktu að nota áhrif sín til þess að fá þá til að vera þessu hlynnta“.Óskað var eftir því að félaskonur hýstu aðkomukonur sem á þyrftu að halda. Sigurborg Kristjánsdóttir hússtjórnarkennari frá Múla í Norður-Ísafjarðarsýslu, sem hafði aflað sérmenntunar víða um Norðurlönd, var fengin til að standa fyrir eldhússýningunni sem valinn var staður í einni skólastofu Iðnskólans. Hinar tvær voru notaðar til kaffidrykkju og sem skrifstofa fundardagana.
Fundurinn hófst fimmtudaginn 7. júní með setningarathöfn í Bárunni þar sem Elísabet Waage söng ljóð sem Þorsteinn Gíslason ritstjóri hafði ort af þessu tilefni. Um 60 konur víðs vegar að af landinu sóttu fundinn. Bríet sagði í setningarræðunni að tilgangur fundarins væri: „að leggja einhvern grundvöll undir meiri samvinnu og kynningu.“ Hún sagði að hér væri um „tilraunafund“ að ræða, fyrstu tilraun til að taka saman höndum til að vinna í sameiningu að ýmsum nauðsynjamálum. Það er til marks um athyglina, sem fundurinn vakti, að ræða hennar birtist í Morgunblaðinu þremur dögum síðar. …“
Guðrún Finnsdóttir, „A.S.B. 15 ára“. Varðveitt í KSS 81. Birgitta Guðmundsdóttir Einkaskjalasafn.
„Það var 15. febrúar árið 1933 að við nokkrar konur komum saman í Þingholtsstræti 18 og stofnuðum okkar eigið stéttarfélag, en þá höfðu nokkrar af þeim stúlkum starfað sem kvennadeild í Verzlunarmannafélaginu Merkúr, þar var unnið með ágætum að styttingu vinnutímans og varð nokkuð ágengt. Við sáum þó brátt að á þeim vettvangi var engra sigra að vænta, enda var sá félagsskapur í upplausn.
Laufey Valdimarsdóttir var aðalforgöngumaður að stofnun félags okkar og formaður þess um tíu ára skeið. Í fyrstu stjórn félagsins voru auk Laufeyjar, Guðrún Finnsdóttir, Kristrún Guðmundsdóttir, Ásta Ólafsdóttir og Soffía Jónsdóttir. Tilgangur félagsins var auðvitað að vinna að bættum kjörum meðlimanna og glæða með þeim félagsþroska.Verkefnin voru ótæmandi. Kjör þessara stúlkna voru mjög léleg og okkur var ljóst, að til þess að bæta kjör stúlknanna var okkur naðsynlegt að eiga sterkan bakhjarl og gekk félagið því í Alþýðusamband Íslands. Vinnutíminn var fyrsta málið, sem við tókum til meðferðar, en hann var þá frá kl. 8 að morgni til kl. 9 að kvöldi, alla daga nema stórhátíðisdagana fjóra. Fengið við þá þegar vinnudaginn styttan niður í 7 klst. daglega og til kl. 2 á sunnudögum. Kaup fyrir heilsdagsvinnu var þá kr. 130,00 og fyrir hálfsdagsvinnu mun meðalkaup hafa verið kr. 75,00 á mánuði. Til voru þá brauðaútsölustaðir þar sem aðeins voru greiddar kr. 50,00 á mánuði fyrir heilsdagsvinnu. Man ég sérstaklega eftir einni stúlku sem vann á einum slíkum stað, hún hafði engan matartíma. Þessi stúlka var mjög treg á að ganga í félagið, var hrædd um að missa atvinnuna. Stúlka þessi var heilsutæp og á þeim tímum var ekki valið um vinnu fyrir slíkt fólk, tæplega um annað að ræða en húsverk.
Það kom brátt í ljós að bakarameistarar undu illa styttingu vinnutímans. Sömdu þeir skjal mikið, sem þeir lögðu fyrir stúlkurnar til undirskriftar, þar sem þær voru látnar óska eftir því að vinnutíminn yrði lengdur aftur, þar sem afgreiðsla væri svo erfið á hinum stutta vinnutíma, sem þeir kölluðu svo. Þess má geta að þá voru um eða yfir 100 sölustaðir fyrir mjólk og brauð hér í bænum. – Nokkrar stúlkur félagsbundnar og ófélagsbundnar skrifuðu undir þetta dæmalausa plagg, orsök þessa var auðsæ: hræðsla við að missa vinnuna.
Fyrstu samningunum náði félagið við Mjólkursamsöluna er hún var stofnuð. Var þá samið um kaup og kjör þeirra stúlkna er hjá Samsölunni unnu. Ég man að ég fór beina leið úr vinnunni á þann samningafund, sem hófst kl. 10 að kvöldi og var samningum lokið kl. 5 að morgni. Alþýðusambandið aðstoðaði við þá samninga. Með þeim samningum fengum við allaverulega kjarabætur, sérstaklega mikið jafnari laun, þ.e. fyrir heilan dag kr. 250,00 á mánuði og fyrir hálfan dag kr. 100,00 og svo ýms hlunnindi, sem áður voru óþekkt, svo sem 14 daga sumarleyfi, 45 veikindadaga, frían sloppaþvott. Enn liðu svo tvö ár þar til samningar tókust við Bakarameistarafélagið og Alþýðubrauðgerðina.
Ýmislegt fleira hefur félag vort haft með höndum, stofnað söngkór, námskeið í saumum, gengist fyrir ferðalögum o.fl.
Samningar hafa oft verið gerðir og hefur ávalt þokað nokkuð áfram, og „ferðin gengið svo grátlega seint“. Að mínu áliti hefur þó gengið alveg sérstaklega seint að ala upp stéttarþroska, sem til þess þarf að hrinda í framkvæmd þeim sjálfsögðu mannréttindakröfum, sem bræðralagshugsjón samtaka hinna vinnandi stétta byggist á. Er ekki kominn tími til að við reynum að átta okkur á þeirri gerningahríð, sem að okkur er gerð? Geysileg átök fara nú fram í heiminum, tilvera verklýðssamtaka getur oltið á því að þau geri sér ljóst hvoru megin þau eiga að skipa sér í þeim átökum, og nú á ég þá heitasta ósk, ekki aðeins til okkar litla félags, heldur og til samtaka allra launþega þessa lands, að þau megi bera gæfu til að standa sameinuð, því hverjum ætti ekki að vera auðskilið, að sameinaðir stöndum vér, en sundraðir föllum vér.“
Aðalheiður Hólm var ein af stofnendum Starfsstúlknafélagsins Sóknar árið 1934 og varð fyrsti formaður þess, aðeins 18 ára gömul. Hún kynntist Laufeyju Valdimarsdóttur gegnum starf sitt fyrir Mæðrastyrksnefnd og sagði frá þeim kynnum í ævisögu sinni, Veistu, ef þú vin átt sem Þorvaldur Kristinsson skráði og kom út árið 1994. Hér eru birt nokkur valin brot.
Þorvaldur Kristinsson. Veistu, Ef þú Vin átt. Minningar Aðalheiðar Hólm Spans. Reykjavík, 1994.
„Á þessum ferðum mínum rakst ég stundum á miðaldra konu þar sem hún kom skyndilega fram úr myrkrinu, upp úr kjöllurum eða út úr húsasundum, nokkuð feitlagin og þung í spori. Ég kannaðist við hana í sjón, þetta var Laufey Valdimarsdóttir, nágranni minn í Þingholtunum. Ekkert skildi ég í því hvað hún var sífellt að ferðast þetta í myrkrinu og oft á tíðum komið fram undir miðnætti.
Svo gerðist það dag nokkurn að þau tilmæli bárust frá Laufeyju til okkar Sóknarkvenna að félagið skipaði fulltrúa í Mæðrastyrksnefnd. Það varð að ráði að ég tæki þátt í starfi nefndarinnar fyrir hönd Sóknar og kvöld eitt mætti ég á minn fyrsta fund í Þingholtsstræti 18. Laufey kom til dyra og bauð mér inn í fundarsalinn á neðri hæðinni. Bersýnilega höfðu þar áður verið tvær stofur sem nú höfðu verið gerðar að einum bærilegum fundarsal. Á efri hæðinni bjó hún sjálf ásamt móður sinni, Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, sem þá var nálægt áttræðu og hætt allri þátttöku í félagsmálum.
Í fundarsalnum voru saman komnar einar fimmtán konur og ekki laust við að sumar þeirra litu mig hornauga þegar ég birtist, tvítug stelpa á stuttu pilsi innan um virðulegar og þrekvaxnar peysufatafrúr. Laufey kynnti mig fyrir konunum, en margar þeirra kannaðist ég við úr bæjarlífinu því þær höfðu víða látið til sín taka. Svo var farið að ræða þau málefni sem lágu fyrir fundinum. Aðstoð við einstæðar mæður sem ekki höfðu náð að reka réttar síns, fjárstyrkir til heimila og fjáröflun á mæðradaginn. Húsráðandinn hafði framsögu í öllum þessum málum og lýsti því hvar brýnast væri að hjálpa og reyna að leggja lið. Það var fátt sem hún virtist ekki vita um olnbogabörn Reykjavíkur.
Nú skildi ég hvernig stóð á ferðum Laufeyjar um bæinn á kvöldin.“ (bls. 102-103)
…..
„Það var einu sinni eftir nefndarfund að Laufey hallaði sér að mér og spurði hvort ég vildi ekki þiggja kaffisopa hjá sér á loftinu, hana langaði að kynnast mér betur. Þetta varð upphafið að mörgum ógleymanlegum stundum yfir koníakstári og kaffi í bláum postulínsbollum sem hún sótti í hornskáp í litlu stofunni þeirra mæðgna. Svona leið tíminn stundum við samræður til klukkan þrjú og fjögur á nóttunni. Laufey spurði ekki um svefn ef hún komst í samkvæmisskap. Yfir bláu bollunum var aldrei rætt um málefni Mæðrastyrksnefndar, það tilheyrði neðri hæðinni, en hún talaði mikið um mannréttindi kvenna, þá virðingu sem konum ber. Svo rifjaði hún upp gamlar minningar, sagði frá ferðum sínum um Ísland á sérkennilegan og rómantískan hátt, því hún elskaði íslenska náttúru og sá hana á myndrænni hátt en aðrar manneskjur sem ég hef þekkt. Engan hef ég heyrt lýsa bláma íslenskrar náttúru eins og hún gerði. Stundum fór hún þá með vísu eftir sjálfa sig, „þetta flaug mér í hug þegar ég stóð þarna,“ sagði hún og spann svo frásögnina þindarlaust áfram. Talaði um allt það sem mig langaði til að reyna, talaði um námsárin sjö í Danmörku, ferðir sínar um Evrópu og endaði ævinlega í París. Það var borgin hennar. Samt fannst mér hún aldrei vera sá heimsborgari sem mér virtist bróðir hennar vera. Sjónarhóll hennar var íslenskur án þess að vera búralegur.
Ég vissi vel að eitt og annað var hvíslað í Reykjavík um ástir Laufeyjar og karlamál, en við töluðum aldrei um þau efni. Það var ekki fyrr en ritsafn Laufeyjar kom út, nokkrum árum eftir dauða hennar, að ég vissi að hún hafði ort ástarljóð. Aldrei hafði hún vitnað til þeirra í mín eyru. Hún var vinum sínum náin án þess að vera beinlínis opinská við þá.
Ég held að ég hafi aldrei kynnst manneskju sem mér hefur þótt eins töfrandi í list samræðunnar og Laufey Valdimarsdóttir. Þar fóru saman merkilegir vitsmunir og áreynslulaus fyndni sem samt var aldrei viðruð á kostnað eins eða neins, það ég heyrði. Að kunna bæði að hlusta og tala, hún hafði þessa list fullkomlega á valdi sínu og steig þar sama línudansinn og á fundunum á neðri hæðinni. Án þess að fipast.“ (bls. 106)
„Frelsið og fullveldið“. Ræða flutt á skemtisamkomu A.S.B. 1. desember af Laufeyju Valdimarsdóttur (1938). Varðveitt í KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands. Einkaskjalasafn.
„Í dag höldum við hátíðlegan fullveldisdag þjóðarinnar, 1. desember. Það er venja, sem endurtekur sig hvert ár, án þess að þjóðin finni það snerta sig mikið. Á einstöku sjaldgæfum augnablikum eins og á 1000 ára hátíð alþingis hepnast það að sameina svo hugi manna að saga þjóðarinnar verði lifandi og þjóðin verði sér þess meðvitandi hvað liðnar aldir hafa að geyma og horfi inn í fyrirheitna landið eins og Ísraels börn eftir eyðimerkurgönguna. Þegar íslenski fáninn reist fyrst við hún fyrir 18 árum átti þjóðin eitt slíkt augnablik. Þið, sem nú eruð ung, getið naumast gert ykkur í hugarlund viðhorfið í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga þá. Við, sem þá vorum ung, fengum að heyra það hjá foreldrum okkar, að aldrei gætum við skilið hina morgunglöðu æsku, sem lifði hátíðina 1874 og sá fyrstu böndin bresta af þjóðinni.
Það sem einkendi sjálfstæðisbaráttuna fyrst og fremst eins og við skildum hana og sáum, sem nú erum miðaldra, var það, að öll þau deilumál, sem nú skifta flokkum hurfu fyrir einu máli, sambandinu við Dani.
Í augum okkar safnaðist alt illt, sem yfir þjóðina hafði dunið á liðnum öldum í einn brennidepil: útlenda valdið.
„Því fátt er frá Dönum, sem gæfan oss gaf
og glöggt er það enn hvað þeir vilja,
það blóð, sem þeir þjóð vorri útsugu af
það orkar ei tíminn að hylja.
Svo tókst þeim að meið’ hana meðan hún svaf
og mjög vel að hnupla og dylja
og greiðlega rit vor þeir ginntu um haf;
það gengur alt lakar að skilja.“
Líkt þessu leit fjöldinn af þjóðinni á málið og þannig túlkuðu skáldin sambandið við Dani. Skáldin höfðu það hlutverk að vekja þjóðina af aldalöngum svefni til meðvitundar um sjálfa sig. Mörg þeirra höfðu alið aldur sinn í Danmörku við þröngan kost, ungir og fátækir mentamenn. Þeir sáu land sitt í hyllingsfegurð, bæði náttúru þess og sögu. Þeir báru saman menningu þjóðarinnar, sem þeir dvöldu hjá, við fátæktina heima, eða öllu réttara menningartæki þessarar þjóðar og lífsskílyrði fólksins. Og þá brann í brjósi þeirra vitundin um að réttur Íslands hefði verið fótum troðinn. Fundu þeir ekki sjálfir hjá sér hæfileikana? Sjálfstæðistímabil þjóðarinnar birtist þeim í dýrðarljóma og þeir lyftu upp armlegg sínum og þjóðin sá sögu sína í nýju ljósi:
„Ísland farsælda frón
og hagsæla hrímhvíta móðir,
hvar er þín fornaldar frægð,
frelsið og manndáðin best?“
Var það ekki úrval norsku þjóðarinnar, sem flutti hingað fyrst til þess að flýja kúgun? Reistu þeir ekki fyrsta lýðveldið í norðurhluta álfunnar, þar sem jafnræðið var svo fullkomið að enginn mátti vera öðrum meiri, svo að framkvæmdavaldið skorti?
Skapaði þessi þjóð ekki sígildar bókmenntir áður en Norðurlandaþjóðirnar hinar eða flestar Evrópuþjóðir voru farnar að hugsa um slíkt? Höfum við ekki geymt þessar bókmentir og sögu og er ekki allt, sem við höfum lifað og reynt fólgið í málinu okkar, sem haldist hefir óskemmt og auðugt fram á þenna dag?
Var ekki þjappað svo að okkur á liðnum öldum að fólkinu fækkaði um meir en helming, jafnvel niður í þriðja eða fjórða hluta þeirrar íbúatölu, sem Ísland hafði, þegar flest var í landinu?.
Lagðist ekki allt á eitt:
– ís og hungur, eldur, kuldi,
áþján, nauðir, svartidauði -.
Samt hafði ekki tekist að drepa þróttinn í þessari þjóð. Átti hún ekki skilið að lifa og skipa bekk með frjálsum þjóðum? Og fengist frelsið og fullveldið, kom þá ekki allt annað af sjálfu sér?
Svipað þessu litu þeir á sjálfstæðismálið, sem voru ungir fyrir 20 árum. Fyrsti fullveldisdagurinn, vonadagurinn 1. desember, rann upp eftir langar og dimmar aldir og sorgir og dauða drepsóttar, sem geysaði um landið haustið 1918.
En nú þegar við erum orðin 20 árum eldri getum við ekki að því gert að við sjáum sögu þjóðarinnar í nýju ljósi. Okkur skilst að hún hefir aldrei verið nema hálfsögð. Af meiri hluta þjóðarinnar fóru engar sögur, eða sagan var aldrei skýrð frá þeirra sjónarmiði. Og nú vil ég fara nokkrum orðum um sögu Íslands frá þeirra sjónarmiði, sem eins og ég eru búnir að gleyma skólalærdómnum.
Sjáum til – hver var fyrsti viðburðurinn á þessu landi?
Þrælar Hjörleifs gerðu uppreisn og drápu húsbónda sinn, manninn sem hafði rænt þeim í heimalandi þeirra og níddist á þeim og beitti þeim fyrir plóg eins og uxum. Þegar þeir sáu þetta nýja og ónumda land dreymdi þá um frelsið, sem þeir höfðu verið sviftir.
Og lýðveldið okkar fornfræga. Hverjir höfðu þar völd og jafnræði? Höfðingjarnir einir – og hversvegna voru þeir höfðingjar? Af því að þeir áttu eignir og höfðu mannaforráð. Miklu af eignum þeirra höfðu þeir rænt herfangi, mönnum og lausafé. Sá þótti mestur, sem mestu gat rænt. Af því að þeir áttu skip gátu þeir náð til ókunnugra og friðsamra þjóða, rænt þær og tekið fólkið sem þræla. Þeir töldust mestir höfðingjar, sem réðu yfir stórum flokk manna og gátu kvatt fylgismenn sína og landseta að heiman, hvernig sem á stóð og krafist liðveizlu þeirra á alþingi og í deilum þeirra hvor við annan. Þrælana áttu þeir eins og þeir væru dauðir hlutir en ekki menn. Gott dæmi um viðskifti höfðingja og þræls er saga um Húnröð í Húnaþingi. Hann gaf þræl sinn lausan og þrællinn auðgaðist en gekk af Húnröði. Þá tók Húnröður eigur þrælsins af honum. Enn rétti þrællinn við og Húnröður varð féþurfi. Var þá sagt að illt væri að þrællinn skyldi auðgast en gofugmennið Húnröður vera félaus. Var þrællinn þá drepinn og eigur hans teknar.
Á Sturlungaöldinni raskaðist jafnvægið á milli þessara höfðingja. Auðurinn skiftist á færri hendur. Lenti þá í blóðugum bardögum og borgarastyrjöld, sem endaði með því að útlenda valdið kom og jafnaði leikinn og sölsaði Ísland undir sig.
Og okkar forna, glæsilega menning í skjóli hinnar nýju íslensku kirkju. Þessarar kirkju, sem byggði á þeim óvanalega grundvelli, að alþingi samþykti með lögum að taka hina nýju trú, til þess að friðurinn héldist og menningin.
Fyrst sjáum við menninguna blómgast. Skólar rísa upp. Sögur og fræði eru skráð í klaustrum af þeim mönnum, sem notið hafa þessarar mentunar. Jafnvel konur læra latínu.
En kirkjunni hnignar líka. Hún er hluti af róversk-katólsku kirjunni, sem nær um allan hinn mentaða heim. Hún eykur vald sitt, sölsar undir sig eignir manna, fjarlægist sitt upprunalega markmið.
Fleira er það, sem við sjáum í nýju ljósi þegar við endurskoðum sögu þjóðarinnar.
Það er sagt að bezti mælikvarði á siðmenningu hverrar þjóðar sé staða konunnar.
Höfum við ekki margsinnis stært okkur af frelsi íslenzku konunnar á söguöldinni?
Höfum við ekki dáð þessar fornkonur, sem sýndust fullkomnir jafnokar karlmannanna? Fengu svipað uppeldi, gengu með þeim að leikjum og voru metnar eftir manngildi sínu án tilltils til þess að þær voru konur? Minnumst við ekki Guðrúnar Ósvífursdóttur, þegar hún reis upp á brúðarbekknum og kallaði á menn sína, til þess að verja manninn, sem flúið hafði á náðir hennar, gegn bónda sínum? Eða Þorbjargar digru, þegar hún tók Grettir til sín í trássi við sveitunga sína og að bónda sínum fjarvrandi og svaraði mótbárum hans með því, að hans væri heiður meiri að eiga þá konu, sem þyrði að gera slíkt. Eru ekki fjölda margar sagnir þessum líkar um sjálfstæði og þrótt íslenzkra kvenna? Áttu þær ekki mikinn þátt í sagnarituninni með frásögnum sínum? Hafa þær ekki átt drýgstan þátt í því að vernda móðurmálið okkar?
En þegar litið er á konurnar sézt best að frelsið átti hér aldrei heimaland, hvorki á gullöldinni né síðar.
Það voru sjálfsagt ríku konurnar einar, sem nutu þess frjálsræðis, sem dáð hefir verið svo mjög, og þó var það af skornum skamti, því þær voru manni gefnar án þess að spurt væri um vilja þeirra sjálfra. Hvernig var farið með ambáttirnar? Er ekki saga Melkorku ódauðlegt minnismerki um kjör þeirra? Og eftir að þrælahald legst niður loðir altaf lítilsvirðingin við sjálf verkin, sem þær leystu af hendi. Griðkunafnið er lítilsvirt og vinnukonustörfin.
En þegar þjóðin fer að rumska af hinum aldalanga dvala þá er staða kvennanna sú, að ekki á stúlka kost á neinum möguleikum öðrum, en að giftast eða að verða vinnukona, sama sem kauplaust. Enginn spyr um hæfileika konunnar. Hún er ekki talin með þegar spurt er um vilja þjóðainnar.
Hvenær fer þjóðin að losna úr þessum fjötrum? Hún lifir að sönnu og andlegt líf hrærist með henni. Alþýðan, sem er svo fátæk að hún á engin nothæf byggingarefni, á altaf yrkisefni. Ágætismenn koma fram á öllum öldum, sem finna sárt til niðurlægingar þjóðarinnar. En þó brýst hún ekki af sjálfsdáðum undan farginu. Áhrif koma annarsstaðar frá. Beztu vakningamennirnir, eins og Eggert Ólafsson, vakna einmitt til fullrar meðvitundar um þjóðerni sitt í útlegðinni í öðrum löndum. Brennur ekki í honum uppreisnarandinn:
„Þó að margur upp og aftur
Ísland níði búðarraftur,
meira má en kvikindskjaftur
kraftur guðs og sannleikans.“
Það er auðsætt að örlög íslenzku þjóðarinnar eru nátengd örlögum annara þjóða og að sömu lögin gilda alstaðar. Kúgunin á sitt alþjóðamál. Af hvaða kyni, kynflokki eða þjóð, sem menn eru, finna þeir eins til kúgunar. Saga íslenzkrar alþýðu er saga alþýðu annara þjóða.
Alþýðan rís upp, þeir mörgu og smáu, sem sagan greinir ekki frá, vakna til meðvitundar um að þeir eru þjóðin. Frelsið verður að vera í þeirra höndum ef jafnvægið á að haldast.
Suður á Frakklandi verður bylting seint á 18. öld. Menn heimta frelsi, jafnrétti, bræðralag fyrir alla og hingað norður berast þessi áhrif. Altaf er náið samband milli okkar frelsisbaráttu og þeirra strauma, sem berast um heiminn.
Suður í Ameríku er hafið frelsisstríð þrælanna og konurnar taka málstað hinna undirokuðu og vakna um leið til meðvitundar um sitt eigið réttleysi.
Hin mikla frelsisbylgja, sem hafin er, heldur altaf áfram að rísa, því hvað eru tvær aldir í lífi mannkynsins? Á okkar dögum, sem nú lifum, gerast stórkostlegar byltingar. Rússland verður frjálst. Alþýðan tekur völdin þar og víða annarstaðar í heiminum.
Altaf stækkar hópur þeirra, sem krefjast réttar síns. Og nú skilst okkur, að það sem okkar beztu menn meintu með sjálfstæðisbaráttu Íslands fyr og síðar, var aldrei annað en frelsi fyrir alla og lífsmöguleikar, og að það sem óttast ber mest og verjast er kúgun hinna fáu yfir fjöldanum. þessar tvær stefnur berjast nú um völdin í heiminum. Um þetta er barist á Spáni, þar sem alþýðan vopnfá ver líf sitt, og það sem er lífinu meira, frelsið.
Við, sem höfum boðað til þessarar samkomu, sem erum lítið og fámennt verkakvennafélag, höfum viljað minnast þess á fullveldisdeginum, að við eru stoltar af því að leggja fram krafta okkar eftir föngum í þeim stóra hópi, sem berst fyrir mannréttindum alþýðunnar, rétti hennar til lífsins sjálfs.
Við vitum það, að sigri kúgunarstefnan er fullveldi Íslands úr sögunni og að menningin sjálf er undir því komin að alþýðan sigri í frelsisbaráttu sinni.“
