Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 59
- Titill
- Guðríður Snorradóttir
- Tímabil
- Óvíst
- Umfang
Tvær
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 59. Guðríður Snorradóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Guðríður Snorradóttir (1911–1995)
- Lífshlaup og æviatriði
Sjá dánartilkynningu í Morgunblaðinu, 28. des. 1995, bls. 51
F. 9. maí 1911, látinn 29. desember 1995. Ættuð úr Leirársveit. Tíu barna móðir. Saumakona.
Árið 1984 kom út bókin Ljóð eftir Guðríði, í henni eru ríflega hundruð ljóð og vísur sem Guðrún orti á árnum 1963-1982. Bókin var gefin út á kostnað höfundar.
- Varðveislusaga
Úr fórum afkomenda
- Um afhendingu
Sólbjört Aðalsteinsdóttir, dóttir Guðríðar, afhenti gögnin 14. nóvember 2002.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Safnið geymir ýmis handrit Guðríðar og fróðleik, jólakort og skriftarbók.
- Grisjun
Engu var eytt
- Viðbætur
Viðbóta er ekki von
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd.
- Tungumál
- Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju og skráði, skrifaði svo lýsandi samantekt í ágúst 2012. Rakel Adolphsdóttir lagfærði skráningu og færði prentmót yfir í öskju 2 í maí 2023.
- Dagsetning lýsingar
- ágúst 2012
Skjalaskrá
Askja 1
- Örk 1: Skriftarbók Guðríðar (æfingabók inniheldur bænir, vísur, ljóð)
- Örk 2: Samúðarkort, ljósmynd úr vegabréfi, viðurkenning um þátttöku í námskeiði 1980, handskrifað ljóð Guðríðar til dóttur hennar
- Örk 3: Ljóðahandrit vélritað, m.a. úr ljóðabók Guðríðar Ljóð, Reykjavík 1984
- Örk 4: Hópferðir MÍR til Sovétríkjanna 1983, 1985 og 1987. Ferðaplön, fróðleikur, kort, handskrifaðir ferðapunktar (dagbók)
- Örk 5: Ýmis handrit og fróðleikur, ljósmynd, ávörp í veislum
- Örk 6: Spá í spil, þýðing spilanna
Neðst í öskjunni eru jólakort til Guðríðar Snorradóttur
Askja 2
prentmót af forsíðu Ljóða