Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Einfríður María Guðjónsdóttir (1888-1971)

Einfríður morgunblaðið 20. apríl 1938
Einfríður María Guðjónsdóttir var fædd 20. apríl 1888 og lést 24. júní 1971. Hún var dóttir Guðjóns Einarssonar útvegsbónda í Reykjavík og Helgu Auðunsdóttur. Guðjón lést þegar Einfríður var einungis þriggja vikna gömul og var móðir hennar ein eftir með þrjú börn. Systkini hennar voru Sigurður, bakarameistari á Siglufirði, og Guðrún. Síðar eignaðist hún hálfbróðurinn Karl A. Jónasson vélsetjara.

Þann 4. október 1904 byrjaði hún að vinna við bókband í Ísafoldarprentsmiðju þá 16 ára gömul. Einfríður útskrifaðist 4. okt. 1906 sem jómfrú í bókbandi. Seinna fékk hún sveinsréttindi í iðninni og var eini kvensveinninn í Bókbindarafélag Íslands (B.F.Í). Hún vann alla tíð í Ísafold eða samfleytt í 57 ár. Einfríður var gjaldkeri Bókbandssveinafélags Reykjavíkur 1918 og 1919 og var gerð að heiðursfélaga B.F.Í. árið 1958.

Heimildir:
Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir. Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna. Reykjavík: Kvennasögusafn Íslands, 1998, bls. 51
Bókbindarinn, 1. apríl 1973, bls. 16
Morgunblaðið, 20. apríl 1938, bls. 6 [einnig myndaheimild]
Morgunblaðið, 1. júlí 1971, bls. 23
Tíminn, 11. ágúst 1971, bls. 28

*Kvennasögusafn Íslands er skjala- og upplýsingasafn um sögu kvenna. Við tökum við hvers kyns einkaskjölum; bréfum, dagbókum, fundargerðarbókum o.s.frv. Hafið samband til að afhenda slík skjöl.*