Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Rannveig Jónsdóttir (f. 1935), Rauðsokkahreyfingin og Kvennakirkjan. KSS 14.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 14
Titill
Rannveig Jónsdóttir
Tímabil
1997-2011
Umfang

Tvær öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 14. Rannveig Jónsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Rannveig Jónsdóttir

Lífshlaup og æviatriði

Fæddist í Reykjavík 8. júní 1935. For.: Jón Kristófersson og Þórunn Guðmundsdóttir. Giftist Ingólfi Þorkelssyni, kennara. Þrjú börn. Kvennaskólapróf. Stúdentspróf frá M.R., B.A. próf í ensku og sögu frá H.Í. 1959. Cand.mag. í ensku frá H.Í. 1980. Enskukennari. Einn af fyrstu meðlimum Rauðsokkahreyfingarinnar. Einn stofnenda Kvennakirkjunnar 1993.

Varðveislusaga

Gögnunum safnaði Rannveig Jónsdóttir. Þau náðu til Rauðsokkahreyfingarinnar, Kvennaársins 1975, baráttuna gegn mansali og vændi, og auk þessa talsvert magn af blaðaúrklippum um þessa atburði og ýmsa fleiri tengda jafnréttisbaráttunni. Gögnum Rauðsokkahreyfingar var skilað í KSS 203 (3 öskjur) [nú KSS 63], og gögnum Kvennaársins 1975 í KSS 1. Eftir standa gögn er varða baráttu gegn súlustöðum og vændi og úrklippur þar að lútandi í safnmarkinu KSS 14.

Um afhendingu

Rannveig Jónsdóttir afhenti 20. ágúst 2015.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Tvær skjalaöskjur, venjulegar. Innihalda gögn og blaðaúrklippur er varða baráttu gegn súlustöðum og vændi á Íslandi á árunum 1997-2005 aðallega.

Grisjun

Gögnin voru borin saman við það sem fyrir er í Kvennasögusafni og ýmist lögð þar eða sett í einkaskjalasafn Rannveigar eftir atvikum. Tvítökum var eytt, en þau voru fá. Blaðaúrklippur voru grisjaðar eftir þörfum.

Viðbætur

Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun. Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd.
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Tengt efni

KSS 1. Kvennafrí 1975. Einkaskjalasafn. 
KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir flokkaði og skráði í ágúst 2015.

Dagsetning lýsingar
28. ágúst 2015

Skjalaskrá

Askja 1

  • Handskrifaðir punktar RJ
  • Drög að frv. til laga um breytingu á hegningarlögum (kynferðisbrot), 2005-2006
  • Grein RJ og fyrirspurn til dómsmálaráðherra, 2000
  • „Af vettvangi“. Verðlistar o.fl.
  • Ræða forseta Lettlands á ráðstefnu í Reykjavík 1999
  • Frétt í RÚV af dansmeyjum í Kvennaathvarfi, 21. nóv. 1999; Auglýsing á Rás 1 um dansara 19. okt. 1999
  • Málþing í Laugarneskirkju: Kynlífsiðnaður á Íslandi, 30.10. 1999
  • Ráðstefna Kvennakirkjunnar í september 1999

Askja 2
Blaðaúrklippur um súlustaði og vændi á Íslandi, 1997-2011, raðað eftir árum