Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 155
- Titill
- Kvennafrí 2005
- Tímabil
- 2005
- Umfang
Tvær öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 155. Kvennafrí 2005. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Undirbúningsnefnd kvennafrídagsins 2005
Auður Styrkársdóttir- Um afhendingu
Skjölunum frá Kvennafrídeginum 2005 safnaði Auður Styrkársdóttir sem og verkefnisstýra kvennafrídagsins.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Tvær öskjur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 1. Kvennafrí 1975.
KSS 2. Listahátíðir kvenna 1985.
KSS 73. Kvennafrí 1985.
KSS 105. Starfshópur 1985 Akureyri.
KSS 151. Borghildur Óskarsdóttir. Ljósmyndasafn..
KSS 156. Kvennafrí 2010.
KSS 2018/14. Kvennafrí 2016. (fáni)
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Var áður á safnmarki KSS 73 frá 2017-2020 (sem var KSS 555 2010-2017). Þrír kvennafrídagar, 1985, 2005 og 2010, höfðu deilt einu safnmarki en Rakel Adolphsdóttir færði á sérsafnmark í júní 2020 þar sem um er að ræða þrjú mismunandi söfn afhent af mismunandi aðilum á mismunandi tímum. Bætt var við skjalasafnið efni sem áður hafði verið í öskju merkt „sýningargripir“ og Emma Björk Hjálmarsdóttir skráði ítarlegar efnið í öskjunum 23. júní 2020.
- Dagsetning lýsingar
- 4. júní 2020
Skjalaskrá
Askja 1:
- Blaðaúrklippur vegna: 19. Júní 2005, kvennaverkfall 24. Október 2005.
- Gögn varðandi: 18. júní, 19. júní, kvennaverkfall 24. október, afhending “Kvennakrafts”
- 2 eintök af skærbleiku blaði með dagskrá kröfugöngu og útifundar Kvennafrí 24. október 2005.
- 1 eintak af hvítu blaði með dagskrá kröfugöngu og útifundar Kvennafrí 24. október 2005.
- Afrit af tölvupóstssamskiptum nefndar kvennafrídagsins 2005
- 2 eintök af skjali með símanúmerum þeirra sem taka þátt í dagskrá Kvennafrís sem og nefndar.
- Skjal með dagskrá útifundarins á Lækjartorgi, 2 bls.
- Skjal sem lýsir skipulagningu á uppsetningu á leikritinu „Vitjun gyðjunnar“ eftir Kristínu Ómarsdóttir leikskáld, 1 bls.
- Hefti með lista yfir fjölmiðla, útbúinn af Eddu Jónsdóttir.
- Afrit af tölvupóstssamskiptum afmælisnefndar 90. ára kosningarétt kvenna. Tekið saman af Auði Styrkársdóttir.
- Afrit af handriti útvarpsþáttarins „Kompan undir stiganum“, Ríkisútvarpið, Rás 1 24. október 2003.
- 3 eintök af söngtextum fyrir Kvennafrí 2005
- Afrit af auglýsingu Kvennafrís með titlinum „Konur! Sýnum samstöðu“
- Ýmis afrit af fréttum, erlendum sem innlendum um Kvennafríið.
- Yfirlýsingar og ræður á Kvennafrídeginum.
- Heillaóskir frá samtökum og einstaklingum.
- Úrklippur úr Morgunblaðinu um Kvöldvökuna 2005
- Upplýsingar um 19. júní 2005
- Upprunaleg handrit „Vitjun gyðjunnar“ leikþáttar Kristínar Ómarsdóttur
- Úrklippur úr tímaritum og dagblöðum um Kvennafrídaginn.
Askja 2:
- Tveir Bónus plastpokar merktir 24. Október og kennimarki Baráttuhátíðar kvenna 2005
- Tveir hvítir fánar með bleikum stöfum, á stendur „Baráttuhátíð kvenna 2005“.
- Einn bleikur fáni með engri áletrun
Utan öskju: Úrklippubók um kvennaárið 2005