Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark
- KSS 2022/18
- Titill
- Friðarömmur
- Tímabil
- 1983-2000
- Umfang
Fjórar öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2022/18. Friðarömmur. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Lífshlaup og æviatriði
Íslenskar friðarömmur voru samtök sem stofnuð voru að erlendri fyrirmynd árið 1988 og störfuðu þar til um miðjan tíunda áratuginn. Stofnendurnir voru ömmur sem vildu vinna að friðarmálum með áherslu á velferð og öryggi barna. Friðarömmurnar skoruðu til að mynda á íslensk stjórnvöld að setja viðskiptabann á Suður-Afríku, til að mótmæla framgöngu apartheid-stjórnarinnar, en hvöttu einnig til friðarfræðslu í skólum og mótmæltu sýningu ofbeldismynda í sjónvarpi.
- Varðveislusaga
Úr fórum félagskonu
- Um afhendingu
11. nóvember 2022 afhenti Ína Gissurardóttir skjöl félagsins „Friðarömmur“ sem fylltu einn pappakassa.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- íslenska, enska, danska
Tengt efni
- Tengt efni
Kvennalistinn (KSS 11)
Ína Gissurardóttir (KSS 2023/1, 2020/8)
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Kristín Svava Tómasdóttir skráði innihald. Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt. September 2025.
- Dagsetning lýsingar
- 28. september 2025
Skjalaskrá
Askja 1
örk 1
- Vélritað viðtal 19. júní við Ínu Gissurardóttur um Friðarömmur
- Bréf frá Friðarömmum til utanríkisráðherra 20. júní 1989 þar sem heræfingum Atlantshafsbandalagsins á Íslandi er mótmælt
- Bréf á ensku til þátttakenda í heræfingum Atlantshafsbandalagsins þar sem þeim er mótmælt af Grandmothers for Peace
- Áskorun frá Friðarömmum til menntamálaráðherra um friðarfræðslu í skólum, ódagsett, og bréf frá Friðarömmum til fjölmiðla um áskorunina
- Bréf frá Friðarömmum til forsætisráðherra 25. apríl 1988 um viðskiptabann á Suður-Afríku og ljósritaðar úrklippur um fréttaflutning af því
örk 2
- Ýmist handskrifað efni, minnispunktar frá starfi félagsins, heimilisföng fjölmiðla, nöfn kvenna sem eru í félaginu eða gætu haft áhuga
- Fundargerð 8. maí 1988
- Lauslegar fundargerðir 8. maí og 5. júlí 1988
- Uppkast að ræðu á fundi 19. júní 1988
- Nafnalisti yfir konur á fundi 7. september 1988
- Minnispunktar sem tengjast þátttöku í Nordisk Forum
örk 3
- Reikningar og kvittanir sem tengjast þátttöku í Nordisk Forum
örk 4
- Ýmsir reikningar
örk 5
- Nafnalistar, konur sem skrá sig í félagið Friðarömmur
örk 6
- Bréf, Edda til Ínu Gissurardóttur frá London 22. október 1989
- Póstkort með friðarteikningu
- Listi með jákvæðum og neikvæðum lyndiseinkunnum kynjanna
- Tvö keðjubréf
- Tvö rissblöð
örk 7
- Ljósrituð blöð úr bæklingi, greinar um aðskilnaðarstefnuna og ýmis friðarmál
örk 8
- Tilklipptar teikningar af börnum
örk 9
- Yfirlýsing um tilgang félagsins Friðarömmur
- Áskorun til sjónvarpsstöðva um að sýna ekki ofbeldismyndir
- Fundarboð um fund á Hótel Sögu, án ártals
örk 10
- Þýðing Rögnu Steinunnar Eyjólfsdóttur á ljóðinu Vi bestemødre for fred, undir titlinum Við friðarömmur
örk 11
- Bréf frá félaginu Friðarömmur með alþjóðlegum undirskriftalista gegn kjarnorkutilraunum Frakka í Kyrrahafi vorið 1992
örk 12
- Nöfn nokkurra kvenna, líklega félagskvenna, ásamt kveðjum
örk 13
- Heimilisföng grunnskóla víða um land, væntanlega fyrir útsendingu á einhvers konar dreifiriti eða bæklingi
örk 14
- Póstkort frá SOS-barnaþorpunum
- Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna í hnotskurn, bæklingur
- Bæklingur frá Barnaheill
- Skýrsla um barnastarf kirkjunnar 1989
örk 15
- Fréttabréf og kort frá Heimsfriðarsambandi kvenna, Women’s Federation for World Peace
örk 16
- Bréf til félagsins Friðarömmur frá Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna vegna 8. mars 1993
- Fyrirheit um heimsfrið, bæklingur frá Bahá’í-söfnuðinum á Íslandi
- Auglýsing um Ísland gegn kjarnorkuvá 1983
- Friðarbréf, bæklingur frá Friðarhreyfingu íslenskra kvenna
- Auglýsing frá Friðardögum í M.A. í desember 1987
- Upplýsingablað um alþjóðlegt samstarf um betri heim, verkefni tileinkað Sameinuðu þjóðunum
- Bréf frá undirbúningshóp um mótmæli gegn nauðgunum í Bosníu-Hersegóvínu 9. febrúar 1993, ásamt áskorun um málið á ensku til Slobodans Milosevic
örk 17
- Þrjú eintök af Dagfara, tímariti Samtaka herstöðvaandstæðinga, 1. og 2. tbl. 1986 og 1. tbl. 1987
örk 18
- Tvö fréttabréf frá Starfsmannafélagi ríkisstofnana
- Pólitískt jafnrétti, bæklingur eftir Bjarna Hannesson þar sem hann hvetur lesendur til að kjósa kvennaframboðin
örk 19
- Gögn frá ráðstefnu Rauðsokkahreyfingarinnar á Selfossi 27.–28. október 1979, dagskrá og drög að skipulagi
örk 20
- Mér líður illa þegar mamma er lamin, bæklingur frá Kvennaathvarfinu
- Kvennaathvarf á tímamótum 1982–1992, bæklingur
- Boð til félagsins Friðarömmur um að mæta á afmælisfund Samtaka um kvennaathvarf 2. júní 1992
örk 21
- Ljósrit af grein eftir Guðrúnu Agnarsdóttur um friðarfræðslu 9. maí 1984
- Erindi um friðarfræðslu á kjarnorkuöld á námskeiði fyrir framhaldsskólakennara
- Könnun gerð af hópi kennaranema í Kennaraháskóla Íslands í samráði við starfshóp BK um friðarfræðslu
- Samantekt úr fyrirlestri dr. Róbert C. Hendersen um friðarfræðslu 4. janúar 1991
- Tillaga til þingsályktunar um friðarfræðslu 1983–1984
- Friðarfræðsla á kjarnorkuöld. Kristin fræði sem hluti af friðarfræðslu, eftir Sigurð Pálsson
- Friðarfræðsla, menntaskólaritgerð eftir Eyrúnu Jónsdóttur og Þórunni Stefánsdóttur um friðarfræðslu í íslenskum grunnskólum vorið 1991, þar sem þær taka m.a. viðtal við félaga í Friðarömmum
örk 22
- Úrklippur og ljósrit af blaðaumfjöllun þar sem Friðarömmur koma við sögu
Askja 2
örk 1
- Gögn um samstarfshóp um friðaruppeldi, stofnun hans og andstöðu við ofbeldisleikföng
örk 2
- Gögn um samstarfshóp friðarhreyfinga og kertafleytingar til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárásanna á Nagasaki og Hiroshima, 1988–1991
örk 3
- Hvatningar frá friðarömmum um að kaupa ekki stríðsleikföng í jólagjafirnar
örk 4
- Bæklingur og auglýsing frá friðarhópi fóstra/friðarnefnd Fóstrufélags Íslands
örk 5
- Bréf til félaga í Friðarömmum 12. október 1988, með íslenskri þýðingu Ingibjargar Snæbjörnsdóttur á greininni Er stríðseðli manninum eðlilegt? eftir Evu Moberg, sem hefur verið rætt um að Friðarömmur gætu gefið út í sínu nafni
örk 6
- Ýmsar úrklippur, kvennapólitísk mál
örk 7
- Ýmsar úrklippur, friðarmál og kjarnorkuvá
örk 8
- Gögn varðandi heimsókn Gabriels Lara, fulltrúa þjóðfrelsishreyfingar El Salvador, til Íslands 14.–21. október 1983: dagskrá, sundurliðaður kostnaður, auglýsing og kvittun frá Kvennalistanum
örk 9
- Gögn varðandi friðarfund kvenna á Lækjartorgi í ágúst 1983: kvittanir og úrklippur
örk 10
- Ljóð og söngtextar um frið og friðarhreyfingu kvenna, m.a. eftir Adolf J.E. Petersen, Jónbjörgu Eyjólfsdóttur og Jóhannes úr Kötlum
örk 11
- Gögn frá Tannverndarráði: uppskriftir fyrir börn og límmiða
örk 12
- Myndaalbúm frá fundi félagsins Friðarömmur á Hótel Sögu
örk 13
- Bréf frá Next Stop Sovjet til Þórhildar Þorleifsdóttur/Kvennalistans 20. september 1988, merkt svarað 14. október 1988
- Next Stop Nevada, upplýsingablöð á íslensku
örk 14
- Bréf frá Elíasi Davíðssyni, fyrir hönd félagsins Ísland-Palestína, til Guðrúnar Agnarsdóttur/Kvennalistans 10. september 1988, þar sem hann óskar eftir stuðningi Kvennalistans við málefni Palestínu
örk 15
- Bréf frá Ínu Gissurardóttur og Ragnhildi Eggertsdóttur í Friðarömmum til menntamálaráðuneytisins 10. október 1989 um ferðastyrk til að sækja ráðstefnu World Association for Orphans and Abandoned Children, ásamt upplýsingum um ráðstefnuna og samtökin
- Gögn varðandi ráðstefnu World Association for Orphans and Abandoned Children í London
örk 16
- Sjö hefti af blaðinu Peace Courie
Askja 3
örk 1
- Ýmis erlend fréttabréf og bæklingar um friðarmál
örk 2
- Bæklingar og fréttabréf um erlend friðarömmusamtök
- Bæklingur um íslenska félagið Friðarömmur á dönsku
- Póstkort frá Solvei Fjæstad í norsku friðarömmusamtökunum til Ínu Gissurardóttur í október 1988
örk 3
- Gögn frá World Health Organization varðandi áhrif kjarnokustríðs á heilsu, mars 1983
örk 4
- A report prepared by the council on enviornmental quality and the department of state, bandarísk skýrsla frá 2000
örk 5
- Ýmis fréttabréf og bæklingar um erlendar friðarráðstefnur og samtök
örk 6
- Ýmis fréttabréf og bæklingar um erlendar friðarráðstefnur og samtök
örk 7
- Auglýsing frá Norsk kvinneforbund um fyrirlestur, án ártals
- Úrklippa, grein á dönsku eftir Hlín Agnarsdóttur um Kvindebevægelsen på Island 1983
Askja 4
örk 1
- Heimilisföng dagheimila
örk 2
- Auglýsingar og dagskrá fyrir ráðstefnu félagsins Friðarömmur, Hvað er friðaruppeldi og friðarfræðsla?, 20. maí 1989
örk 3
- Merki og heiti félagsins Friðarömmur á plasti
örk 4
- Merki og heiti félagsins Friðarömmur á plasti
örk 5
- Teikningar af merki og heiti félagsins Friðarömmur
örk 6
- Texti sem boðar friðsamlega hegðun barna, merktur félaginu Friðarömmur, stærri og minni
örk 7
- Grafíkmynd merkt Ég vildi ég væri…, 1985, ljósrit
- Auglýsing frá Kvennalistanum um félagsfund í Reykjaneskjördæmi 22. júlí 1985, með handskrifaðri kveðju og nöfnum
- Ljósrit af auglýsingu frá Kvennalistanum um kvennaframboð í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 2. mars 1986
örk 8
- Kringlótt merki félagsins Friðarömmur, líklega undirbúningur fyrir barmmerki
örk 9
- Tvö barmmerki frá Bestemødrene Oslo, lítið og stórt
- Mappa frá 2nd International Peace Symposium í London hjá World Association for Orphans and Abandoned Children 1989 og tvö umslög, se