Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 141
- Titill
- Ástríður Torfadóttir
- Umfang
Handrit að skáldsögu, handskrifað, í einni þunnri öskju.
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 141. Ástríður Torfadóttir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Ástríður Torfadóttir (1867-1949), hjúkrunarkona.
- Lífshlaup og æviatriði
Ástríður Torfadóttir (11. janúar 1867-23. janúar 1949). Hjúkrunarkona. Foreldrar: Torfi Halldórsson kaupmaður á Flateyri og María Júlíana Össurardóttir. Ástríður var við nám í tungumálum, teiknun o.fl. Í Danmörku. Starfaði sem hjúkrunarkona við sjúkrahúsið á Akureyri 1899 og var yfirhjúkrunarkona við sjúkrahúsið á Ísafirði 1900-1902. Var við hjúkrunarnám í Kaupmannahöfn á haustönn 1902. Starfaði sem hjúkrunarkona við franska spítalann á Fáskrúðsfirði 1903-1907.
Heimild
Páll Eggert Ólason. Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940. 6. bindi, bls. 42.- Um afhendingu
María Pétursdóttir afhenti 8. október 1983. Hún var frænka Ástríðar.
Um aðgengi og not
- Tungumál
- íslenska
- Umfang og tæknilegar þarfir
Bókin hefur verið endurgerð stafrænt og er aðgengileg á vefnum einkaskjol.is, smellið til að opna.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Var áður í öskju 173. Rakel Adolphsdóttir færði á safnmarkið KSS 141 í febrúar 2018 og skráði rafrænt.
- Dagsetning lýsingar
- 12. febrúar 2018.
Skjalaskrá
Handrit skáldsögunnar Örlagaþráðurinn eftir Ástríði Torfadóttur hjúkrunarkonur. Handskrifað, 357 blaðsíður (A5).
Bókin hefur verið endurgerð stafrænt og er aðgengileg á vefnum einkaskjol.is, smellið til að opna.