Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Þóra Matthíasdóttir (1879-1970), kaupkona. KSS 2025/21.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 2025/21
Titill
Þóra Matthíasdóttir
Tímabil
1949-1998
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2025/21. Þóra Matthíasdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Þóra Matthíasdóttir (1879-1970), kaupkona

Hildur Þorsteinsdóttir (1913–1998), nam klæðasaum í Berlín 1937-1938

Lífshlaup og æviatriði

Þóra var fædd 2. júní 1879. Lærði hannyrðir við Kunst-flid-skólan í Kaupmannahöfn 1904. Sótti söngtíma hjá ungfrú Valborgu Helleman. Rak hannyrðaverslun við Hafnarstræti Akureyri í 30 ár. Flutti til Reykjavík 1947 í Drápuhlíð 32

 

Faðir: Matthías Jochumsson (1835-1920). Móðir: Guðrún Runólfsdóttir (1852-1923).

Maki: Þorsteinn Skaftason frá Seyðisfirði, gift 11. september 1910. Hann lést 1915. Dætur þeirra: Guðrún söngkennari (f. 1911), Hildur Ingibjörg kaupkona (f. 1913) og Valgerður húsfreyja (f. 1914).

Um afhendingu

Sigríður Sigurðardóttir (f. 1948) gaf gestabók úr fórum móðurömmu sinnar Þóru Matthíasdóttur og fáein önnur skjöl tengdum henni. Fósturmóðir Sigríðar var Hildur Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Bréf og upplýsingar fylgdu. Leðurbandið á gestabókinni er eftir Lóló.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir skráði

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
28. ágúst 2025

Skjalaskrá

askja 1 

örk 1

  • Fæðingar og skírnarvottor, Hildur Þorsteinsdóttir (f. 1913), 1947
  • Vottorð, Hildur hefur greitt eftirstöðvar íbúðar Drápuhlíð 32, 1949
  • Skírnarvottor Hildar 1934 [hefur rifnað í tvennt]
  • Afsal íbúðar á 1. hæð í Drápuhlíð 32, 1949
  • Veðskuldabréf Hildur Þorsteinsdóttir, Drápuhlíð 32

örk 2

  • Gestabók
    • í leðurbandi eftir Lóló, ein ljósmynd af Þóru í bókinni. Byrjar á áttræðisafmæli frú Þóru 2. júní 1959 – erfidrykkja Hilda Þorsteinsdóttur 29. september 1998