Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Þjóðbúningar

SigurlaugGunnarsdottir

Sigurlaug Gunnarsdóttir fæddist 29. mars 1828. Hún var meðal stofnenda fyrsta kvenfélags Íslands 1869 (formlega 1871) er konur í Rípurhreppi í Skagafirði komu saman að heimili Sigurlaugar í Ási í Hegranesi. Hún kom einnig að stofnun kvennaskóla í Ási 1877. Þá var Sigurlaug yfirsetukona (ljósmóðir) sveitarinnar.

Sigurlaug saumaði hátíðarbúning fyrir konur í samstarfi við Sigurð Guðmundsson málara. Það var skautbúningurinn, sem vera átti þjóðbúningur íslenskra kvenna og raunar karlabúning einnig, sem naut minni vinsælda.

Saga hennar merkilegur vitnisburður um metnað og áhrif kvenna á síðari hluta 19. aldar.

.

.

.


 

HugurogHond1966

Heimilisiðnaðarfélag Íslands hefur átt veg og vanda af því að halda hefð þjóðbúninganna á lofti.

Félagið var stofnað 12. júlí 1913. Hlutverk þess er að vernda þjóðlega íslenskan heimilisiðnað, auka hann og efla. Það hefur unnið ötullega að því, einkum með námskeiðahaldi en einnig með útgáfu tímaritisins Hugur og hönd sem má lesa á timarit.is.

Í tímaritinu má finna fróðleik um hannyrðir og ýmis snið, þar á meðal nokkur snið og ráð við að sauma sinn eiginn þjóðbúning. 

.

.

.


*Höfundur: Rakel Adolphsdóttir
*Fyrst birt 7. september 2024
*Síðan er í vinnslu