Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Theodóra Thoroddsen (1863-1954)

TTglugginnminn

Heimili Theódóru Guðmundsdóttur Thoroddsen skáldkonu (1863-1954) frá árinu 1908-1930 var á Vonarstræti 12. Hún fæddist að Kvennabrekku í Dölum og lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Theódóra giftist Skúla Thoroddsen og eignuðust þau 13 börn, þar af náðu tólf fullorðinsaldri. Theódóra var virk í menningar- og bókmenntalífi Reykjavíkur og hafði mikinn áhuga á þjóðmálum, einkum þeim er lutu að kvenréttindum. Hún var í 4. sæti á Kvennalistanum sem bauð fram til Alþingis árið 1922. Theódóra fór ekki að sinna ritstörfum fyrr en á miðjum aldri og þekktust er hún fyrir þulur sínar, m.a. Tunglið, tunglið taktu mig. Bók hennar Þulur er aðgengileg á vefnum bækur.is.

KSS54TT
Skjalasafn dóttur hennar Maríu Thoroddsen er varðveitt á Kvennasögusafni og eru þar falleg bréf og ljóð rituð frá Theodóru.
KSS173TT
Á Kvennasögusafni er varðveitt fingurbjörg Theodóru sem var gefin safninu árið 2010 af afkomendum systurdóttur hennar, Ástu Pétursdóttur Thorsteinsson (1885–1950).

Ljóð hennar MITT VAR STARFIÐ birtist í Mánaðarriti Lestrarfélags kvenna árið 1914.

—

Mitt var starfið hér í heimi

heita og kalda daga

að skeina krakka og kemba þeim

og keppast við að staga.

Eg þráði að leika lausu við

sem lamb um grænan haga,

en þeim eru ekki gefin grið,

sem götin eiga að staga.

Langaði mig að lesa blóm

um langa og bjarta daga,

en þörfin kvað með þrumuróm:

„Þér er nær að staga.“

Heimurinn átti harðan dóm

að hengja á mína snaga,

hvað eg væri kostatóm

og kjörin til að staga.

Komi hel með kutann sinn

og korti mína daga,

eg held það verði hlutur minn

í helvíti að staga.

—

Anna Sigurðardóttir (1908-1996), stofnandi Kvennasögusafns, birti ljóð Theódóru um Maríu mey í bók sinni Allt hafði annan róm í páfadóm:

Þar situr hún María mey,
man ég, hvað hún söng:
Ég er að vinna í vorið
vetrarkvöldin löng.
Ef að þornar ullin vel
og ekki gerir stórfelld él,
sendi ég þér um sumarmálin sóley í varpa.
Fögur er Harpa.
Um messur færðu fleira,
fjólu og músareyra.
Hlíðunum gef ég grænan kjól,
svo göngum við upp á Tindastól,
þá næturvökul sumarsól
„sveigir fyrir norðurpól“
en dvergar og tröll sér búa ból
í bergsins innstu leynum,
og ljósálfar sér leika á hól
að lýsigulli og steinum.

Við skulum reyna að ræna þá frá einum.
Börnunum gef ég gnótt af óskasteinum.
„Þá spretta laukar,
þá gala gaukar.“
Þá syngja svanir á tjörnum,
segðu það börnum,
segðu það góðum börnum.

—

Ítarefni:

* Rakel Adolphsdóttir tók saman, fyrst birt 20. júní 2025.