Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Júlíana Jónsdóttir (1838-1917)

Juliana_Jonsdottir_bref

Júlíana Jónsdóttir (1838-1917) varð fyrst íslenskra kvenna til að gefa út 1876 skáldrit. Það var ljóðabókin Stúlka sem hún gaf út á eigin kostnað 1876. Júlíana fæddist á Búrfelli í Hálsasveit í Borgarfirði, en ólst upp á Rauðsgili í Reykholtsdal hjá móðurafa sínum og konu hans. Hún var í vinnumennsku í Akureyjum á Breiðafirði 1860-1874. Þaðan fluttist Júlíana til Stykkishólms og síðar til Reykjavíkur. I Stykkishólmi vann hún ýmis störf og tók auk þess virkan þátt í starfsemi leikfélagsins. Júlíana skrifaði leikritið Víg Kjartans Ólafisonar sem byggir á Laxdœlu. Verkið var sett upp í Stykkishólmi 1879 og lék Júlíana sjálf Guðrúnu Ósvífursdóttur. Leikritið er varðveitt á handritadeild Landsbókasafns Islands — Háskólabókasafn og er elsta leikrit sem varðveist hefur eftir konu. Júlíana fluttist til Vesturheims 1886, að því talið er, og vann þar einkum fyrir sér með barnagæslu og heimilishjálp. Hún bjó á ýmsum stöðum efrir því hvar vinnu var að fá hverju sinni, lengst af við bág kjör. í Vesturheimi skrifaði hún síðari ljóðabók sína, Hagalagða, sem var gefin út í Winnipeg 1916. Lítið hefur varðveist af handritum er tengjast Júlíönu og ekkert í eiginhandarriti nema fjögur sendibréfsem hún skrifaði Ingibjörgu Bjarnadóttur, vinkonu sinni, í Seattle í desember 1916 og janúar 1917. – Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna (Kvennasögusafn, 1999), bls. 79-80.

Kaffilof

Kaffi hátt skal hrósið veitt
heims um áttir kunnar;
það hefur máttug rétt til reitt
ríklund náttúrunnar.

Hreinsar blóðið, hita ljær,
hroll frá þjóðum tekur,
svalar móðum, svita´ út slær,
sálir hljóðar vekur.

Eyðir doða, aflar mörs;
ei hef ég skoðun ranga –
mörgum boðar fylling fjörs,
færir roða´ á vanga.

Hrindir leti, herðir kapp;
hvað mun betur þakkað?
Kaffi met ég mesta happ,
meðan get það smakkað.

– Úr ljóðabókinni Stúlka