Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Björg C. Þorláksson (1874-1934)

bjorgc

Björg Carítas Þorláksson (1874-1934) var fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi þegar hún varði ritgerð sína við Sorbonne-háskóla í París árið 1926.

Björg er einnig þekkt fyrir að hafa unnið að útgáfu orðabókar ásamt eiginmanni sínum Sigfúsi Blöndal í áratugi. Orðabókin kom út á árunum 1920-1924 og er enn stærsta íslenska orðabókin sem hefur verið unnin. Þau skildu formlega árið 1925.

Björg ritaði ljóð um orðabókarvinnuna sem birtist í ljóðabók sem kom út skömmu eftir hennar dauðadaga.
—
ORÐABÓKINNI MIKLU LOKIÐ, EFTIR 20 ÁRA STARF.

Ó, fjötrarnir hrundir, sem ár eftir ár
í álögum sálu mína bundu!
Og læstu í huga mér frostnótta fár,
sem felldi hrím á unga gróðrarlundu.

Ó, þrautirnar unnar, sem Skapanorn mér skóp,
er skráfesti’ hún urðarrúnir mínar!
þó orðabókin þegi um anda míns óp,
um aldir þögul ber hún minjar sínar.

Und ösku varfalinn minn fjörneisti klár
og felhellu, er andans glóðir svæfði.
Og tíminn og gleymskan að verki voru um ár.—
— Ég vissi ei lengur, hvort frelsið mér hæfði.

En andi minn fellir nú álöguhjúp. —
Og andræn glóð um hug og sálu streymir.
Sem vorblær úr dái æ vekur moldarhjúp,
svo vaknar neisti, er biðlíf sálar geymir.

Sem vorsól úr hrími fær vakið daggtár nótt,
svo vermir hug og frjóvgar neisti hulinn.
— Hann lífglóðum örþyrstum anda vekur þrótt,
unz aftur lifnar gróður sálar dulinn.

– Björg C. Þorlákson: Ljóðmæli. Reykjavík, 1934, bls. 48.

—

Björg Caritas Þorlákson (1874-1934) fæddist í Vesturhópshólum í Húna-þingi. Hún hóf nám, sextán ára gömul, við Kvennaskólann í Ytri-Ey undir stjórn Elínar Briem. Björg útskrifaðist þaðan þremur árum síðar. Hún fékk kennarastöðu við skólann og gegndi því starfi til 1897. Björg fór til Kaupmannahafnar og nam við Kennaraháskólann 1898-1900 og lauk auk þess stúdentsprófi utanskóla frá Lyceum – menntaskólanum vorið 1901. Hún lagði stund á málfræði og heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla og útskrifaðist þaðan 1902. Björg giftist dr. Sigfúsi Blöndal þegar hún var 29 ára gömul og vann með honum að íslensk-danskri orðabók í um tvo áratugi. Árið 1920 hóf hún nám að nýju, þá 46 ára gömul. Björg fékk styrk, til fjögurra ára, úr sjóði Hannesar Árnasonar og nam sálarfræði, stærðfræði og lífeðlisfræði við háskóla í Kaupmannahöfn, Þýskalandi, Sviss og síðast við Sorbonneháskóla í París. Þaðan útskrifaðist hún með doktorsgráðu, fyrst Norðurlandabúa, árið 1926. Björg fékk kennsluleyfi við Háskóla Islands ári síðar. Hún hélt fyrirlestra í Reykjavík, sem hún byggði á doktorsritgerð sinni, og skrifaði greinina „Samþróun líkama og sálar“ í Skími 1928. Sama ár var hún kjörin félagi í Vísindafélagi Islendinga. Þau Sigfús áttu engin börn og slitu samvistum árið 1925. Björg stundaði ritstörf og þýddi bókmenntir og fræðilegt efni af ýmsum toga. Auk þess birti hún fjölda frumsamdra og þýddra greina í íslenskum og dönskum blöðum og tímaritum. Björg var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1926. Hún lést árið 1934.

– Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna (1996), bls. 15.

—

Frekari heimildir:

 

* Fyrst birt á facebook-síðu Kvennasögusafns 30. janúar 2021
* First birt á vefsíðu Kvennasögsuafns 19. mars 2025
* Umsjón með birtingu: Rakel Adolphsdóttir