Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Sigurlaug Gunnarsdóttir

SigurlaugGunnarsdottir

Sigurlaug Gunnarsdóttir fæddist 29. mars 1828. Hún var meðal stofnenda fyrsta kvenfélags Íslands 1869 (formlega 1871) er konur í Rípurhreppi í Skagafirði komu saman að heimili Sigurlaugar í Ási í Hegranesi. Hún kom einnig að stofnun kvennaskóla í Ási 1877.

Sigurlaug saumaði hátíðarbúning fyrir konur í samstarfi við Sigurð Guðmundsson málara. Það var skautbúningurinn, sem vera átti þjóðbúningur íslenskra kvenna og raunar karlabúning einnig, sem naut minni vinsælda.

„Árið 1857 var Sigurður Guðmundsson málari á ferð um æskustöðvar sínar, Hegranesið, dvaldi hann þá í Ási nokkra daga, því Ólafur og hann voru náskyldir. Talaði hann þá margt við húsfreyjuna um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá að hugsa um að endurbæta. Fjell vel á með þeim í því efni. Þegar Sigurður var kominn heim til Reykjavíkur, sendi hann Sigurlaugu margar teikningar, bæði til að baldýra og skattera eftir í skautföt. Hún Ijet nú ekki lenda við það eitt, að skoða þessar teikningar, heldur tók að saufna sjer búning eftir Sigurðar leiðsögn, kennaralaust, og mest í hjáverkum.“ Hlín 1. tbl. 1928, bls. 91.

Sigurlaug var yfirsetukona (ljósmóðir) sveitarinnar: 

 „Ekki er vitað til að nein lærð yfirsetukona hafi búið í Rípursókn þegar Sigurbjörg lést, en í prestsþjónustubók 4. janúar 1864 er Sigurlaug Gunnarsdóttir í Ási titluð yfirsetukona.Í svari séra Jóns Reykjalín 11. febrúar 1840 til deildar Hins íslenska bókmenntafélags í Kaupmannahöfn lét hann þess getið að ein ólærð yfirsetukona sinnti fæðingum í Rípursókn, Þórunn Ólafsdóttir, einnig í Ási.Sigurlaug hefur verið ein af þeim konum, eins og Þórunn, sem tóku að sér að aðstoða aðrar konur í fæðingum án þess að hafa gengist undir próf í yfirsetukvennafræði.“ Erla Dóris Halldórsdóttir, Fæðingarhjálp á Íslandi 1760-1880, doktorsritgerð 2016, bls. 101.

Öldin hennar, sjónvarpsþættir sem voru framleiddir af Saga Film árið 2015 í tilefni af 100 ára kosningarréttarafmæli kvenna, fjallað um félagið.

Saga hennar merkilegur vitnisburður um metnað og áhrif kvenna á síðari hluta 19. aldar.

*Höfundur: Rakel Adolphsdóttir
*Fyrst birt 7. september 2024