Ásta Laufey Jóhannesdóttir (1906-1991) var afrekskona í sundi. Hún fæddist í Reykjavík árið 1906. Foreldrar hennar voru Jóhannes Magnússon (1879-1918) og Dórótea Þórarinsdóttir (1882-1933).
Þann 4. ágúst 1928 synti hún Viðeyjarsundið, á milli Viðeyjar og Reykjavíkur, fyrst kvenna. Hún æfði sund með Sundfélaginu Ægi.
Ásta vann sem talsímavörður um tíma, og var húsfreyja í Reykjavík. Hún kvæntist Sverri Briem og eignuðust þau soninn Jóhannes (1933-2018). Ásta og Sverrir skildu. Árið 1948 giftist hún Brynjólfi Theodórssyni (1906-1963) tannlækni. Hún var síðast búsett við Hjarðarhaga 64. Ásta lést þann 1. nóvember 1991.
Heimildir:
Íþróttablaðið, 9.-10. tölublað (01.09.1928), bls. 215-216
Morgunblaðið, 25. maí 2018
Póst- og símatíðindi, 5.-9. tölublað (01.09.1967), bls. 5
Gunnlaugur Haraldsson og Lýður Björnsson. Tannlæknatal 1854-2007, Reykjavík 2007, bls. 521
*Kvennasögusafn Íslands er skjala- og upplýsingasafn um sögu kvenna. Við tökum við hvers kyns einkaskjölum; bréfum, dagbókum, fundargerðarbókum o.s.frv. Hafið samband til að afhenda slík skjöl.*

