Ásta Magnúsdóttir var skipuð ríkisféhirðir þann 1. október 1933 og gegndi stöðunni í aldarfjórðung. Hún var fyrsta konan sem hlaut opinbera embættisstöðu hér á landi.
Ásta hafði unnið á skrifstofu ríkisféhirðis frá árinu 1910. Hún var fyrst fengin til að gegna stöðunni til bráðabirgða eftir að forveri hennar hætti störfum en var svo skipuð í embættið. Hún sagði síðar, í viðtali við tímaritið „19. júní“ að kvennasamtök í landinu hafi haft mikið um það að segja að henni hafi verið veitt embættið: „Ýmis kvenfélög sendu skriflega áskorun til ríkisstjórnarinnar um að veita mér embættið. Tel ég, að það hafi verið almennur vilji kvenna í landinu, að ég hlyti það.“ [Heimild]
Ásta vann á skrifstofu ríkisféhirðis frá árinu 1910 og lét hún af störfum sem ríkisféhirðir þegar hún fór á eftirlaun árið 1958. Hún hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1946 og stórriddarakross sömu orðu 1958.
*Kvennasögusafn Íslands er skjala- og upplýsingasafn um sögu kvenna. Við tökum við hvers kyns einkaskjölum; bréfum, dagbókum, fundargerðarbókum o.s.frv. Hafið samband til að afhenda slík skjöl.*



Kvennasögusafn Íslands tekur við skjalasöfnum – bréfum, dagbókum o.þ.h. – frá einstaklingum og félagasamtökum. Hafðu samband ef þú vilt afhenda skjöl.