Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Lilja Bjarnadóttir Nissen (1912-1985), geðhjúkrunarfræðingur. KSS 2022/25.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 2022/25
Titill
Lilja Bjarnadóttir Nissen
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS  2022/25. Lilja Bjarnadóttir Nissen. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Lilja Bjarnadóttir Nissen (1912-1985), geðhjúkrunarfræðingur

Lífshlaup og æviatriði

Lilja Bjarnadóttir Nissen var fædd 20 mars 1912 í Bolungarvík og lést 1. júlí 1985.  Foreldrar hennar voru Kristín Salome Ingimundardóttir og Bjarni Jón Bárðarson, þau áttu 12 börn.

Lilja lauk prófi úr 2. bekk í Kvennaskólanum árið 1932. Hún kynntist Thomas Nissen (1903-1962) árið 1933. Eftir það fara þau saman til Danmerkur og Lilja fer að læra hjúkrun og lauk þar námi við Kommunehospital í Aabenraa árið 1940. Hún stundaði síðan framhaldsnám í hjúkrun geðveikra. Eftir andlát Thomasar snýr Lilja aftur til Íslands og varð deildarhjúkrunarkona á Kleppsspítala til haustsins 1964 en eftir það varð hún forstöðukona Farsóttarhússins þar til starfsemi var þar lögð niður. Loks var hún yfirhjúkrunarkona á geðdeild Borgarspítalans til 1979.

„Lilja var á leið til vinnu sinnar á Grund, þegar dauðinn fór um hana, þar sem hún beið eftir strætisvagni og varð henni ekki bjargað.“ eins og stendur í minningargrein í Morgunblaðinu 11. júlí 1985 https://timarit.is/page/1615168?iabr=on#page/n37/mode/2up

Varðveislusaga

Úr fórum gefanda, Lilja var afasystir hennar

Um afhendingu

Afhent á skrifstofu Kvennasögusafns af Kristínu Jónsdóttir 29. mars 2022

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska
Umfang og tæknilegar þarfir

handskrifað og vélritað

Tengt efni

Tengt efni

KSS 2022/2. Kristín Jónsdóttir og fjölskylda.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir skráði

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
7. nóvember 2024

Skjalaskrá

A. Lilja Bjarnardóttir Nissen

 askja 1 

Ljóð, lausavísur, skrif og hugleiðingar Lilju Bjarnadóttur Nissen. Bæði handsrkifað og vélritað, sumt flutt í útvarpi 1975 og 1976.