Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 57
- Titill
- Amalía Líndal
- Tímabil
- 1967-1999
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafns Íslands. KSS 57. Amalía Líndal.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Amalía Líndal
- Lífshlaup og æviatriði
Amalía fæddist í Massachusettes-fylki á Bandaríkjunum og bjó alla sína skólagöngu í Boston. Hún lauk BA-prófi í blaðamennsku frá Boston University árið 1949. Sama ár giftist hún Baldri Líndal, efnaverkfræðingi og fluttist með honum til Íslands. Þau eignuðust fimm börn, Tryggva, Ríkarð, Eirík, Jakob og Önnu. Amalía stundaði blaðamennsku og skrifaði smásögur og greinar í íslensk dagblöð. Árið 1962 kom út í Bandaríkjunum Ripples from Iceland sem inniheldur hugleiðingar hennar um veruna á Íslandi. Á árunum 1967-1970 gaf hún út blaðið 65˚. Árið 1972 flutti Amalía alfarið til Kanada og bjó lengst af í Toronto og stundaði þar blaðamennsku og skriftir. Hún varð félagi í Rithöfundasambandi Kanada.
Nánar, sjá æviágrip í öskju og grein í Lesbók Morgunblaðsins 22. júlí 2000.
- Varðveislusaga
Úr fórum fjölskyldunnar.
- Um afhendingu
Tryggvi V. Líndal afhenti Kvennasögusafni gögnin 6. desember 1996.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Ein askja.
- Grisjun
Engu var eytt.
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er ótakmarkaður
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.
- Tungumál
- Íslenska og enska.
Tengt efni
- Tengt efni
Handrit Amalíu eru varðveitt á handritasafni Landsbókasafns.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Askjan var áður á öskjunúmerinu 202. Auður Styrkársdóttir breytti safnmarkinu í KSS 194 og skrifaði lýsandi samantekt 1. ágúst 2012. Rakel Adolphsdóttir færði á safnmarkið KSS 57 í febrúar 2017.
- Dagsetning lýsingar
- 1. ágúst 2012.
Skjalaskrá
Innihald
- Ópr. skáldsaga Amalíu skrifuð á ensku. Raise the Bright Sword, 291 bls.
- Stutt æviágrip Amalíu, skrifað af Tryggva V. Líndal syni hennar
- 1. tbl. 1. árg. af blaðinu 65° sem Amalía gaf út 1967
- Diskur (fyrir Machintosh) „Cross-Cultural Fiction of Amalia Lindal. With an Anthropological Commentary by Tryggvi V. Líndal.” Diskútgáfa Tryggva frá 1999