Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark
- KSS 168
- Titill
- Halldóra Bjarnadóttir
- Tímabil
- 1927–1968
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 168. Halldóra Bjarnadóttir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Halldóra Bjarnadóttir (1873–1981), heimilisiðnaðarráðunautur og ritstjóri.
- Lífshlaup og æviatriði
Halldóra Bjarnadóttir fæddist 14. október 1873 að Ási í Vatnsdal. Hún ólst þar upp þar til móðir hennar skildi við manninn sinn og þær mæðgur fluttu til Reykjavíkur. Halldóra var heimiliskennari þar til hún hélt til Noregs árið 1896 og lauk kennaraprófi þremur árum síðar. Eftir það flutti hún til Íslands og kenndi við Barnaskólann í Reykjavík en þegar henni var neitað um fasta stöðu þar flutti hún Noregs þar sem hún fékk fasta stöðu. Hún var síðar skipuð skólastjóri Barnaskólans á Akureyri og var í þeirri stöðu frá 1908–1918. Hún flutti aftur til Reykjavíkur árið 1922 og gerðist handavinnukennar við Kennaraskólann.
Halldóra átti þátt í stofnun Sambands norðlenskra kvenna árið 1914 og var fyrsti formaður þess. Hún var ritstjóri Hlínar sem sambandið gaf út frá 1917. Þá stofnaði hún Heimilisiðnaðarfélag Íslands ásamt fleirum árið 1913 og starfaði sem heimilisiðnaðarráðunautur í mörg ár. Í starfi sínu ferðaðist hún landið og hvatti konur til að stofna kvenfélög.
Halldóra var kosin í bæjarstjórn Akureyrar árið 1921 ásamt því að sitja á lista Kvennalistans í Alþingiskoningunum árið 1922 en Ingibjörg H. Bjarnason náði ein kjöri. Halldóra var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1931 og stórriddarakrossi sömu orðu 1971. Hún lést árið 1981 á Blönduósi.
Heimildir: Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna, bls. 18 og Nanna Ólafsdóttir, „Halldóra Bjarnadóttir heimilisiðnaðarráðunautur“ Árbók Landsbókasafns Íslands 1990, bls. 35-55. Sjá einnig ævisögu um Halldóra Bjarnadóttur sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson skrásetti 1960.
- Varðveislusaga
Skjalasafnið barst um hendur sjö mismunandi aðila á sjö mismunandi tímum.
- Um afhendingu
Úr afhendingabókum Kvennasögusafns:
- 15. október 1974 Elín Guðmundsdóttir lánaði en bætti við síðar bréf frá Halldóru Bjarnadóttur.
- 4. maí 1980 Guðrún Gísladóttir kom með að gjöf: 4 bréf til Aðalbjargar Jakobsdóttur frá Halldóru Bjarnadóttur, 1926 og 1927 ... Kort til frá HB 8. janúar 1958
- 20. apríl 1985 Sæmundur Björnsson kom um leið og hann lét mig fá Hlín sem hann útvegaði safninu (sjá dagbók) lét hann safnið fá 2 bréf frá Halldóra Bjarnadóttur til Ólafar Sigurðardóttur á Laugarvatni, svo og tvær kvittanir með orðsendingu til útsölumanna Hlínar. Sæmundur vantar 14. árg. Hlínar.
- 30. maí 1997 gaf Elísabet Sigurgeirsdóttir mynd af Halldóru Bjarnadóttur 100 ára.
- Júlí 2002 Vilhelmína Þorvaldsdóttir, Hrísmóum 1, Garðabæ, færði safninu um hendur Stefaníu M. Pétursdóttur 5 bréf og og 3 bréfspjöld Halldóru Bjarnadóttur til Elísabetar Friðriksdóttur, 1 bréf Halldóru til Aðalbjargar Sigurðardóttur og 1 bréf frá Aðalbjörgu Sigurðardóttur til Elísabetar ásamt Skrá yfir búninga- og munasafn Halldóru Bjarnadóttur.
Auk þess er eitt bréf frá Halldóru til Önnu Sigurðardóttur og Skúla Þorsteinssonar og svo annað bréf til síra Pjeturs Magnússonar frá Halldóru Bjarnadóttur sem er óvíst hvernig rataði til Kvennasögusafns.
Innihald og uppbygging
- Frágangur og skipulag
Safnið er skipulagt eftir afhendingum.
Allt safnið hafði verið varðeitt saman áður en það var sett á sérsafnmark fyrir utan ljósmyndina sem var í annarri öskju.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
Kvennasögusafn:
KSS 4. Anna Sigurðardóttir.[Kort 1956-1970, bréf 1956-1976]
KSS 50. Samband sunnlenskra kvenna.[41 bréf 1928-1955]
KSS 60. Sigríður Thorlacious. [1 bréf]
KSS 72. Lára Sigurbjörnsdóttir.[1 bréf 1972]
KSS 109. Samband breiðfirskra kvenna.[Bréf]
KSS 2018/18. Elín Briem.[1 bréf 1928]
Handritasafn:
Lbs 748 NF. Halldóra Bjarnadóttir. (bréfa- og handritasafn)
Lbs. 5082, 4to – 5102, 4to
Bréfasafn hennar er einnig varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Blönduósi. Bréf frá Halldóru til Ragnheiðar O. Björnsdóttur eru í vörslu Amtbókasafnsins á Akureyri. Einnig er ýmislegt úr fórum hennar á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Rakel Adolphsdóttir setti á sérstakt safnmark og tók saman lýsandi samantekt í febrúar 2021.
- Reglur eða aðferð
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar
- 10. febrúar 2021
Skjalaskrá
askja 1
- örk 1: Bréf til Önnu Sigurðardóttur og Skúla Þorsteinssonar frá Halldóru Bjarnadóttur í tvíriti. Blönduósi 24. nóvember 1969.
- örk 2: Ljósrit af bréf til Elínar Guðmundsdóttur Snæhólm frá Halldóru Bjarnadóttur. Reykjavík 2. október 1926. [afhent 1974]
- örk 3: bréf til Aðalbjargar Jakobsdóttur frá Halldóru Bjarnadóttur [afhent 1980]
- örk 4: bréf til Ólafar Sigurðardóttur á Laugarvatni frá Halldóru Bjarnadóttur [afhent 1985]
- örk 5 [afhent 2002]:
- örk 6: Bréf til Elísabetar Friðriksdóttur frá Halldóru Bjarnadóttur [afhent 2002 frh.]
- örk 7: Bréf til síra Pjeturs Magnússonar frá Halldóru Bjarnadóttur 23. nóvember 1968 [afhending óvís]
- örk 8: Ljósmynd af Halldóru Bjarnadóttur á afmælisdaginn [afhent 1997]