Mar 4, 2026

Leiðsagnir um sýninguna VIÐ ERUM MARGAR


Verið velkomin í leiðsögn um 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns á lokadögum hennar í Þjóðarbókhlöðunni.


Rakel Adolphsdóttir sýningarstjóri og Kristín Svava Tómasdóttir, textahöfundur sýningarinnar, segja frá fjölbreyttum hópi kvenna sem unnu ýmis konar störf á fyrri hluta 20. aldar, stofnuðu félagasamtök, buðu sig fram til þings og forseta ásamt því að taka þátt í kvennaverkföllum.

Leiðsagnirnar fara fram:

Fimmtudaginn 5. mars, kl. 15-16
Föstudaguinn 6. mars, kl. 16-17
Mánudaginn 9. mars, kl. 12-13 og kl. 15-16

Sjá nánar á facebook
 

Þá fara einnig fram leiðsagnir á ensku með Marion Poilvez í samvinnu við WOMEN, sjá nánar á facebook:

Föstudaginn 6. mars, kl. 12-13
Sunnudaginn 8. mars, kl. 12-13

--

Minnum líka á heimasíðu sýningarinnar: 50ar.kvennasogusafn.is 

DSC09178.jpg