Feb 3, 2026

Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.


Þórhildur Ísberg (f. 1925) hefur tekið saman upplýsingar um nemendur í Kvennaskóla Húnvetninga 1879-1901 og fjölskyldan hennar hefur tekið upplýsingarnar saman í bók sem er aðgengileg á Kvennasögusafni bæði rafrænt sem og í bókaformi. Þá hefur fjölskyldan einnig sett upp heimasíðu þar sem upplýsingar um nemendurna eru aðgengilegar. Elín Briem sá um aðalkennslu í skólanum um tíma en viðamikið bréfasafn hennar er varðveitt á Kvennasögusafni og með þessu verkefni Þórhildar verður hægt að greina betur hvaða bréfritarar eru þar að finna.

Í aðgangsorðum að bókinni stendur: 

„Um 1980 hóf Þórhildur Ísberg (f. 1925), þá skjalavörður við Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu á Blönduósi, að safna upplýsingum um námsmeyjar sem höfðu stundað nám við kvennaskóla héraðsins. Í bókinni Kvennaskóli Húnvetninga 1879–1939. Minningarrit, Reykjavík 1939, er listi yfir allar námsmeyjar en tekið er fram að hann sé ónákvæmar af ýmsum ástæðum. Í því sambandi má nefna að nokkrar stúlkur finnast ekki í öðrum prentuðum heimildum og sum bæjarnöfn  finnast ekki[ heldur.

[...]

Eftir því sem árin liðu minnkaði þrek Þórhildar til að halda þessu verki áfram. Verkið kom þó alloft til umræðu okkar á milli og ég bætti stundum við upplýsingum eftir að við höfðum rætt málin. Fyrir nokkru ákvað ég að skoða þetta af einhverri alvöru og reyna að koma verkinu út, annaðhvort á prenti eða í rafrænu formi, áður en Þórhildur yrði 100 ára, þann 1. desember 2025. Ég lét mér nægja að leita í rafrænum heimildum sem eru aðgengilegar, einkum Íslendingabók, og er þá ekki vísað til þeirra heimilda sérstaklega og þar eru eingöngu birtar grunnupplýsingar um viðkomandi.“

 

Kvennasögusafn þakkar fyrir þessa dýrmætu gjöf Þórhildar og fjölskyldu hennar. Hér er hægt að nálgast bókina sem PDF og hér er heimasíðan með upplýsingunum um Kvennaskólastúlkurnar.

Kvennaskolastulkurnar.png