Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
KSS 2021/12
Halldóra Valgerður Steinarsdóttir
1970-2000
14 öskjur
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/12. Halldóra Valgerður Steinarsdóttir. Einkaskjalasafn.
Halldóra Valgerður Steinarsdóttir (f. 1939)
Halldóra Valgerður Kristín Ævarr Steinsdóttir
Kvenfélag Árbæjarsóknar
Fædd á Borg við Eyrarbaka. Flutti með manni sínum, Óla Karló Olsen (f. 1935) til Reykjavíkur 1959, þau byggðu sér hús í Árbæjarhverfinu 1967. Hún var stofnafélagi í Kvenfélagi Árbæjarsóknar 1968. Starfaði með Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík. Halldóra var dagmóðir í mörg ár og ein af stofnfélögum Samtaka dagmæðra. Hún rak Sólbaðsstofu Árbæjar frá 1988.
Foreldrar Halldóru voru Steinn Einarsson (1914-1986) og Gróa J. Jakobsdóttir (f. 1913). Börn Halldóru og Óla: Steinn Jakob (f. 1958), Ingibjörg Ragna (f. 1960), Ágústa (f. 1961), Magnús (f. 1964), Kristín (f. 1970) og Ólína (f. 1973).
Þann 13. júlí 2021 færði Kristín Óladóttir gögn móður sinnar Halldóru Valgerðar Steinsdóttur, fyrir hönd þeirrar síðarnefndu sem tengjast starfi Halldóru í Kvenfélagi Árbæjarsóknar, sum skjölin tengjast húsmæðraorlofi í Reykjavík. [safnmark: KSS 2021/12]
A Kvenfélag Árbæjarsóknar
B Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenfélagasamband Íslands
C Orlofsnefnd húsmæðra
Gefið Íslandssafni til varðveislu (hægt að nálgast þar)
Viðbóta er von
Aðgangur er öllum heimill
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska
15 ljósmyndir hafa verið endurgerðar stafrænt og eru aðgengilegar á ljósmyndagagnagrunni Landsbókasafns.
Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt 19. janúar 2025.
Rakel gróflokkaði, setti í réttar umbúðir og gekk frá safninu ásamt Johanna Hirsch, starfsnema frá Þýskalandi, sama dag.
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
19. janúar 2025
Fyrst birt 19.01.2026