Nov 28, 2025

Afmælishátíð 5. des : Kvennasögusafn á tímamótum


Til að fagna 50 ára afmæli Kvennasögusafns er efnt til afmælishátíðar á afmælisdegi Önnu Sigurðardóttur, 5. desember. Þá verða fluttir örfyrirlestrar um fjölbreytt efni sem tengist bæði safninu og kvennasögu. Léttar veitingar að lokinni dagskrá.

 

Verið öll velkomin í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar, föstudaginn 5. desember kl. 13-16.

 

Dagskrá:

Rektor Háskóla Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir, opnar fyrri hluta afmælishátíðarinnar

 

  • Nemendur í námskeiðinu „Menning og miðlun : Kvennafrí 1975“ í Háskóla Íslands kynna lokaverkefni sín og viðbætur við 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns VIÐ ERUM MARGAR

 

– Kaffihlé –

 

Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, opnar seinni hluta afmælishátíðarinnar

 

Örfyrirlestrar:

  • Halldóra Kristinsdóttir – Andlitslausa biskupsfrúin
  • Sigríður Jónsdóttir – Konur bakvið tjöldin
  • Kristín Lilja Thorlacius – Bara kona? – flokkun ævisagna í Þjóðarbókhlöðu
  • Gerður G. Óskarsdóttir – Kvennasögusafni fylgt í örugga höfn
  • Erla Hulda Halldórsdóttir – Kvennasaga í konfektdós
  • Helga Kress – Dótið hennar Önnu
  • Valgerður Pálmadóttir – Kvenna- og kynjasaga, femínísk heimspeki og pólitískt samhengi samtímans

– Kaffihlé –

  • Sigurborg Hilmarsdóttir – Kvenréttindafélag Eskifjarðar
  • Íris Ellenberger – „Það slær órótt, hjartað mitt“. Ástarjátningar milli kennslukvenna um aldamótin 1900
  • Anna Dröfn Ágústsdóttir – Hlutafélagið Kvennaheimilið
  • Kristín Svava Tómasdóttir – Taskan hennar Laufeyjar
  • Una María Magnúsdóttir og Hólmfríður Benediktsdóttir – Fært: Forvitin rauð, grasrótartímarit og grafísk hönnun
  • Eliza Reid – Glöggt er gests augað

 

Skál!

 

Fundarstjórn: Rakel Adolphsdóttir fagstjóri Kvennasögusafns

Til að senda kveðju sem verður lesin upp á afmælishátíðinni hafið samband við Karólínu Rós Ólafsdóttir: karolina.r.olafsdottir@landsbokasafn.is

Póstkort2.jpg