Til að fagna 50 ára afmæli Kvennasögusafns er efnt til afmælishátíðar á afmælisdegi Önnu Sigurðardóttur, 5. desember. Þá verða fluttir örfyrirlestrar um fjölbreytt efni sem tengist bæði safninu og kvennasögu. Léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Verið öll velkomin í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar, föstudaginn 5. desember kl. 13-16.
Dagskrá:
Rektor Háskóla Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir, opnar fyrri hluta afmælishátíðarinnar
- Nemendur í námskeiðinu „Menning og miðlun : Kvennafrí 1975“ í Háskóla Íslands kynna lokaverkefni sín og viðbætur við 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns VIÐ ERUM MARGAR
– Kaffihlé –
Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, opnar seinni hluta afmælishátíðarinnar
Örfyrirlestrar:
- Halldóra Kristinsdóttir – Andlitslausa biskupsfrúin
- Sigríður Jónsdóttir – Konur bakvið tjöldin
- Kristín Lilja Thorlacius – Bara kona? – flokkun ævisagna í Þjóðarbókhlöðu
- Gerður G. Óskarsdóttir – Kvennasögusafni fylgt í örugga höfn
- Erla Hulda Halldórsdóttir – Kvennasaga í konfektdós
- Helga Kress – Dótið hennar Önnu
- Valgerður Pálmadóttir – Kvenna- og kynjasaga, femínísk heimspeki og pólitískt samhengi samtímans
– Kaffihlé –
- Sigurborg Hilmarsdóttir – Kvenréttindafélag Eskifjarðar
- Íris Ellenberger – „Það slær órótt, hjartað mitt“. Ástarjátningar milli kennslukvenna um aldamótin 1900
- Anna Dröfn Ágústsdóttir – Hlutafélagið Kvennaheimilið
- Kristín Svava Tómasdóttir – Taskan hennar Laufeyjar
- Una María Magnúsdóttir og Hólmfríður Benediktsdóttir – Fært: Forvitin rauð, grasrótartímarit og grafísk hönnun
- Eliza Reid – Glöggt er gests augað
Skál!
Fundarstjórn: Rakel Adolphsdóttir fagstjóri Kvennasögusafns
Til að senda kveðju sem verður lesin upp á afmælishátíðinni hafið samband við Karólínu Rós Ólafsdóttir: karolina.r.olafsdottir@landsbokasafn.is