Skjalasöfn félaga og samtaka

Gallerí Langbrók (1978-1986). KSS 2024/4.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Kvennasögusafn Íslands

  • Safnmark:

    KSS 2024/4

  • Titill:

    Gallerí Langbrók

  • Umfang:

    Fimm öskjur

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2024/4. Gallerí Langbrók, Guðrún Auðunsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Gallerí Langbrók

    Guðrún Auðunsdóttir

    Guðrún Svava Svavarsdóttir

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Gallerí Langbrók var gallerí sem hópur listakvenna starfrækti í Reykjavík frá 1978 til 1986, fyrst á Vitastíg en síðar á Amtmannsstíg 1, þar sem þær sýndu og seldu verk sín. Konurnar komu úr ólíkum geirum myndlistarinnar, svo sem textíl, leirlist, grafík og teikningu, en margar fengust við nytjalist á borð við keramik og fatahönnun. Galleríið dró nafn sitt af Hallgerði langbrók, sem listakonurnar sögðu að væri „eina rauðsokkan í Íslendingasögunum“.

  • Um afhendingu:

    Guðrún Auðunsdóttir afhenti skjalasafnið 29. janúar 2024.

    Á sama tíma afhenti hún hennar eigin persónulegri skjöl voru sett á annað safnmark, að hennar beiðni: KSS 2024/5. Guðrún Auðunsdóttir.

     

    Fleiri þátttakendur í Galleríinu eru einnig að undirbúa afhendingu eða hafa þegar komið með skjöl tengd Galleríinu.

     

    Guðrún Auðunsdóttir og Jóhanna Þórðardóttir hrinti söfnuninni af stað árið 2021 eftir samtal við Elísabetu Gunnarsdóttur. Guðrún Svava Svavarsdóttir sendi með pósti ferilskrár sínar sem verða varðveittar með þessu safni. Safn Gallerí Langbrókar gæti því stækkað með tímanum og er það matsatriði hverju sinni hvað verður varðveitt undir nafni hverrar listakonu og hvað verður varðveitt með safni Gallerísins – en öll söfnin verða samtengt í skráningu.

Innihald og uppbygging

  • Viðbætur:

    Viðbóta er von

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Safnið er opið

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

  • Tengt efni:

    Hönnunarsafn hefur tekið á móti verkum Gallerísins

    • KSS 2024/3, Sigrún Eldjárn: Óskráð, ýmislegt tengt galerínu
    • KSS 2025/19, Sigrún Guðmundsdóttir: Óskráð en veggspjöld og fleira tengd galleríinu
  • Not:

    Efni úr þessu skjalasafni var sýnt á 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns 17. október 2025 - 9. mars 2026

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Kristín Svava Tómsdóttir skráði innihald afhendingarinnar

    Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt

  • Dagsetning lýsingar:

    28. september 2025


Skjalaskrá

Askja 1

  • Örk: Tvær ljósmyndir
    • Tvær ljósmyndir, önnur af Gallerí Langbrók á Vitastíg að utan og hin inni
  • Örk: Um félagið, hvernig það var starfrækt
    • Leiguskilmálar fyrir sýningarsal Langbrókar
    • Teikning af sýningarsal Langbrókar
    • Samningur um aðild Guðrúnar Auðunsdóttur að Gallerí Langbrók 5. júní 1983
    • Vaktalisti fyrir Gallerí Langbrók í ágúst 1983
    • Tillaga um stjórn Langbrókar í framtíðinni, haust 1983
    • Útreikningar á greiðslum fyrir vaktir
  • Örk: Prentað efni, Langbrók
    • Tvær auglýsingar
    • Lítil askja með póstkortum, framleidd af Gallerí Langbrók, með myndum af listaverkum kvennanna
    • Lítil gormabók með upplýsingum um meðlimi Gallerí Langbrókar
  • Örk: Sýningar Langbrókarkvenna, skrár 1979–1985, tengt textílgrúppunni
    • Úrklippur
    • Bæklingar frá hinni sænsku Textilgruppen
    • Lítill bæklingur með lista yfir listakonur
    • Bæklingur um Hönnun 82 á Kjarvalsstöðum
    • Bæklingur frá Textílfélaginu 1985
    • Plakat frá sýningu í Gerðubergi í mars 1983
    • Boðskort á ýmsar sýningar og opnanir, meðal annars í Gallerí Langbrók

 

Askja 2

  • Örk: Sjömenningar
    • Blaðaúrklippur um sjömenninga sem sýna í Listmunahúsinu 1983
  • Örk: Verk Guðrúnar Au
    • Blaðaúrklippa, viðtal við Ingimund Sveinsson
    • Eintak af Hús og Híbýli með umfjöllun um Gallerí Langbrók
  • Örk: Úrklippur, Guðrún Auðunsd. á starfstíma Langbrókar
    • Úrklippur
  • Örk: Sýning, Stokkhólmur 1981
    • Úrklippur, auglýsing og tveir bæklingar um íslenska handverkssýningu í Stokkhólmi vorið 1981
  • Örk: Langbrók Kjarvalsstaðir 1979 og 1981
    • Úrklippur.
  • Örk: Úrklippur
    • Úrklippur.
  • Örk: Sýningar Langbrókarkvenna eftir að félagið er lagt niður (1985)
    • Úrklippur
    • Þrír sýningarbæklingar

Askja 3

  • Örk
    • Kvittanir tengdar Gallerí Langbrók
    • Fjögur ávísanahefti
    • Umslag með stimpli Gallerí Langbrókar
  • Örk
    • Kvittanabók
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, janúar 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, febrúar 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, mars 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, apríl 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, maí 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, maí–júní 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, 24. ágúst 1983
  • Örk
    • Reikningsbók frá Gallerí Langbrók, ágúst 1983
  • Örk
    • Ýmsir reikningar frá Gallerí Langbrók

 

Askja 4 [mappa]

Veggspjöld

askja 5 [þunn]

Guðrún Svava Svavarsdóttir ferilskrár, send 2021


Fyrst birt 28.09.2025

Til baka