Sep 19, 2025

Úrklippubækur frá framboði Vigdísar Finnbogadóttur nú stafrænar


Nú er hægt að fletta úrklippubókum frá forsetaframboði Vigdísar Finnbogadóttur 1980 stafrænt. 

Úrklippubækurnar voru gefnar Kvennasögusafni af Gerði Steinþórsdóttur og Sigríði Jónsdóttur 30. júní 1981. Anna Sigurðardóttir tók á móti gjöfinni á heimili sínu, Hjarðarhaga 26, þar sem Kvennasögusafn var til húsi fyrstu 20 starfsárin. Vigdís Finnbogadóttir var viðstödd og skartaði silkiklút með merki kvennaárs Sameinuðu þjóðanna en Anna var með hálsmen með sama merki. Hálsmenið er varðveitt á Kvennasögusafni og verður til sýnis í október.

 

Flettið þessari merku heimild hér:

  1. Fyrsta úrklippubókin
  2. Önnur úrklippubókin
  3. Þriðja úrklippubókin
KSS003-00005jpg.jpg